© 2025 Tix Miðasala
Hannesarholt
•
28. júní
Miðaverð frá
3.900 kr.
Í lok sumars verður tekin upp hljómplatan Ný íslensk sönglög. Markmið verkefnisins er að auka aðgengi hlustenda og flytjenda að nýrri íslenskri söngtónlist í þeirri von að auka útbreiðslu hennar. Þessir tónleikar eru hluti af undirbúningi og fjármögnun hljómplötunnar. Flutt verða söngverk eftir Elenu Postumi, Finn Karlsson, Högna Egilsson og Thomas Stankiewicz. Verið hjartanlega velkomin.
Flytjendur:
Áslákur Ingvarsson, barítón
Kristín Sveinsdóttir, mezzósópran
Elena Postumi, píanó
Um flytjendur:
Áslákur Ingvarsson, útskrifaðist frá Konunglegu konservatóríunni í Antwerpen 2022 og hefur síðan þá verið áberandi í íslensku tónlistarlífi ásamt því að afla sér reynslu erlendis. Hann hefur sungið stór óperuhlutverk eins og Fígaró í Rakaranum í Sevilla, Belcore í Ástardrykknum, Dr. Malatesta í Don Pasquale, Leporello í Don Giovanni og Marcello La Boheme. Hér heima hefur hann komið fram með Sviðslistahópnum Óði, Kammeróperunni, Sambandinu Óperukompaní og á Óperudögum. Áslákur var tilnefndur Söngvari ársins á Grímunni 2024 fyrir hlutverk sitt í Póst-Jón. Hann hefur einnig komið fram á tónleikum, tekið þátt í frumflutningi nýrra íslenskra tónverka. Áslákur þreytti frumraun sína í Evrópu í ágúst 2024 sem Dr. Malatesta í Don Pasquale.
Kristín Sveinsdóttir söng frá unga aldri í kórastarfi Langholtskirkju og lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 2013. Ásamt kórnum Graduale Nobili söng Kristín á Biophilia plötu Bjarkar, en að tónleikaferðalagi loknu hóf hún nám í klassískum söng við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Hún tók sér hlé frá námi til að syngja við óperustúdíóið Accademia del Teatro alla Scala í Mílanó, þar sem hún kom reglulega fram sem einsöngvari á tónleikum og í ýmsum óperuuppfærslum. Helstu kennarar Kristínar hafa verið Harpa Harðardóttir, Sigríður Ella Magnúsdóttir, Margit Klaushofer og Janet Haney. Frá árinu 2020 hefur Kristín verið búsett á Íslandi og verið áberandi í íslensku tónlistarlífi. Hún er ein stofnenda Kammeróperunnar en starfar sem söng- og forskólakennari við Tónskóla Sigursveins meðfram söngverkefnum. Nú síðast söng Kristín hlutverk Cherubino í Brúðkaupi Fígarós í Borgarleikhúsinu, frumflutti öróperuna Halfway Down eftir Elínu Gunnlaugsdóttur á Myrkum Músíkdögum í janúar og kom fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Ísland á Óperuveislu með Ólafi Kjartani í apríl.
Elena Postumi ólst upp í Róm á Ítalíu og hóf að spila á píanó þegar hún var fimm ára. Hún stundaði nám á píanó, tónsmíði og túlkun listsöngs við Conservatorio di S. Cecilia í Róm og hélt svo áfram með nám sitt við Hochschule für Musik und Theater "Felix Mendelssohn-Bartholdy" í Leipzig þar sem hún lauk mastersprófi í kammertónlist og doktorsprófi í túlkun klassískra sönglaga og hljómsveitarstjórnun. Sem píanisti hefur hún komið víða fram og unnið með kammersveitum og söngvurum í Evrópu og Bandaríkjunum. Hún hlaut verðlaun sem Besti meðleikari í söngkeppninni Lortzing í Leipzig. Ánægja hennar af söng leiddi til starfa við Íslensku óperuna og Nasjonale Opera í Bergen. Frá 2020-2023 starfaði hún við Staatstheater Darmstadt þar sem hún stjórnaði tónleikum og óperum. Verk hennar, Becoming Luise Büchner, var hluti af leikári Staatstheater Darmstadt 2022/23 og seldust upp 8 sýningar. Tónlist Elenu er lýst sem „nútímalegt tónmál sem sveiflast milli dægurtónlistar og avant-garde“. Elena hlaut styrkinn _DAAD-scholarship of the interdisciplinary research center_frá Háskólanum við Bielefeld árið 2019, STIBET-doctorate styrkinn 2019-2020 og er um þessar mundir styrkhafi hjá Live Music Now e. V. Leipzig Fördergesellschaft. Elena starfar í dag sem kennari í túlkun klassískra sönglaga og „coach“ í ítalskri óperu við Akademie für Tonkunst í Darmstadt en er sömuleiðis í samstarfi við tónsmíðadeildina.