© 2025 Tix Miðasala
Leikfélag Akureyrar
•
11. - 24. október
Sala hefst
17. júní 2025, 12:00
(eftir 1 viku)
?Við kynnum fyrsta verk leikársins með stolti: Elskan er ég heima? eftir breska leikskáldið Laura Wade, í fyrsta sinn sett upp í íslensku leikhúsi!
Væri lífið ekki auðveldara ef allt væri eins og í gamla daga? Það finnst Gunnu, sem hefur tekið þá ákvörðun ásamt Jonna eiginmanni sínum að lifa lífsstíl áranna 1950 - 1960. Hún eyðir deginum í að gera hreint á heimilinu svo allt sé í röð og reglu áður en húsbóndinn kemur heim þar sem ferskur kokteill, troðin pípa og hitaðir inniskór bíða hans í vel innréttaðri íbúðinni. Þau hjónin klæðast fiftís fötum og ísskápurinn er líka frá þeim tíma, sem væri kannski allt í lagi ef hann væri ekki alltaf að bila, því þótt flest hafi verið endingarbetra í gamla daga þá duga hlutir eins og bílar og ísskápar ekki að eilífu. Það getur verið dýrt að lifa á röngum áratug vegna alls viðhaldsins - og hvar á að kaupa föt sem passa lífsstílnum nema á internetinu? Hjónin verða því að svindla til að allt gangi upp.
Laura Wade er breskt leikskáld sem hefur skrifað á annan tug leikverka og er Darling, I´m Home þeirra þekktast og fékk hún fyrir það hin virtu Olivier leiklistarverðlaun árið 2019. Hún hefur einnig skrifað nokkur útvarpsleikrit fyrir BBC og er einn handritshöfunda sjónvarpsþáttaseríunnar Rivals hjá Disney+. Þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir hana ef sett upp í íslensku leikhúsi. Ilmur Kristjánsdóttir þreytir hér frumraun sína sem leikstjóri og Akureyringurinn Vilhjálmur B. Bragason staðfærir og þýðir verkið.
Ferskt, fyndið og skemmtilegt!
Leikstjórn: Ilmur Kristjánsdóttir
Höfundur: Laura Wade
Þýðing: Vilhjálmur Bergmann Bragason
Leikmynd: Börkur Jónsson
Búningar: Björg Marta Gunnarsdóttir
Tónlist: Sigurjón Kjartansson
Ljós: Lárus Heiðar Sveinsson
Hljóð: Gunnar Sigurbjörnsson
Hár og förðun: Harpa Birgisdóttir
Leikarar: Edda Björgvinsdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Ólafur Ásgeirsson, Urður Bergsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir
Frumsýnt 11. október 2025