© 2025 Tix Miðasala
Salurinn
•
1. mars
Miðaverð frá
3.900 kr.
Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri tónlistarsenu landsins. Með Tíbrá leitast Salurinn við að bjóða upp á lifandi tónlistarflutning þar sem hefðbundnum klassískum tónleikum er teflt saman við tilraunir, nýja nálgun og jafnvel ögrun við tónleika formið.
„Hugleiðingar um jo¨kulvatn og a´st“ er lagaflokkur eftir Hróðmar I. Sigurbjörnsson, byggður a´ ljo´ðabo´k Ingunnar Snædal, „Guðlausir menn, hugleiðingar um jökulvatn og ást“ frá árinu 2006.
I´ þremur sms-ljo´ðum, sem eru vistuð en ekki send, ly´sir ung stu´lka tilfinningum si´num til annarrar stu´lku. Henni er fylgt eftir i´ hversdagsleikanum, þar sem segir fra´ y´msu; dauða o¨mmu, fjo¨lskyldunni, a´starsambandi í dauðateygjunum og so¨gum fra´ heimaho¨gunum. Allt kallast a´ við hina ny´ju, forboðnu, a´st.
Ljo´ð Ingunnar eru einfo¨ld en jafnframt margslungin, nokkurs konar sja´lfsævisaga og ferðalag. Ljo´ðmælandi er á leiðinni austur á land með systkinum sínum að jarðarfo¨r o¨mmu þeirra. A´ ferðalaginu kynnumst við fjo¨lskyldu so¨gukonunnar; kostum hennar, go¨llum og leyndarma´lum. Dregin er upp mynd af fjo¨lskyldu i´ sveit og gert go´ðla´tlegt gri´n að na´unganum i´ leiðinni.
Samti´mis upplifum við innra ferðalag ljo´ðmælandans sem hræðist mjo¨g að segja si´num na´nustu fra´ leyndarma´li si´nu, forboðinni ást, og vill alls ekki rugga ba´tnum og eyðileggja hugsanlega viðkvæmt jafnvægi fjo¨lskyldunnar.
„Hugleiðingarnar“ voru upphaflega samdar fyrir Dúplum dúó þeirrar Bjarkar Níelsdóttur, söngkonu, og Þóru Margrétar Sveinsdóttur, víóluleikara. Þær frumfluttu verkið á Sumartónleikum í Skálholti í júlí 2022. Verkið er nú umskrifað og stækkað með aðkomu hljóðfæraleikara úr Caput en Dúplum verður í aðalhlutverki og leiðir framvindu verksins.