© 2025 Tix Miðasala
Salurinn
•
30. október
Miðaverð frá
7.500 kr.
Hin lífsseiga spjalltónleikaröð Jóns Ólafssonar, Af fingrum fram, heldur ótrauð áfram inn í sextánda starfsvetur sinn í Salnum.
Það þarf ekkert að kynna Pálma Gunnarsson fyrir þjóðinni en Vopnfirðingurinn vinsæli söng sig fyrst inn í hjörtu þjóðarinnar á áttunda áratug síðustu aldar og lögin skipta tugum sem við þekkjum í hans flutningi. Lengst af hefur Mannakorn þeirra Magnúsar Eiríkssonar verið hans helsti griðastaður og úr þeirri smiðju þekkjum við lög eins og Ó þú, Reyndu aftur og Sölva Helgason - sem dæmi. Pálmi er auðvitað þrusu bassaleikari í ofanálag og mun munda vopnið samhliða söngnum á þessum spennandi tónleikum þar sem farið verður í gegnum vægast sagt litríkan ferilinn.