© 2025 Tix Miðasala
Salurinn
•
2. október
Miðaverð frá
7.500 kr.
Hin lífsseiga spjalltónleikaröð Jóns Ólafssonar, Af fingrum fram, heldur ótrauð áfram inn í sextánda starfsvetur sinn í Salnum.
Grínistinn geðþekkir mætir á ný í Salinn og heimsækir vin sinn úr Vesturbænum. Þeir félagar slógu síðast á létta strengi laust eftir að samkomubanni sleppti í Covid og þá sátu áhorfendur með gott bil á milli sín, grímuklæddir, og hlógu að uppátækjum þeirra félaga. Nú verður skemmtunin hinsvegar grímulaus og ljóst að af nógu er að taka þegar ferill Ara Eldjárn verður krufinn í tveggja manna tali, tónlistarflutningi og græskulausu gríni.