Feðgar og mæðgur

Hannesarholt

6. september

Miðaverð frá

4.900 kr.

Tónlistarhópurinn Feðgar og mæðgur samanstendur annars vegar af feðgunum Sigurjóni Alexanderssyni, gítarleikara og Bjarti Sigurjónssyni, söngvara og hins vegar mæðgunum og söngkonunum Ásu Óðinsdóttur og Emmu Eyþórsdóttur.

Það var leikfélag Mosfellssveitar sem leiddi hópinn saman í upphafi en þar hafa þau öll verið með annan fótinn um árabil. En það var sameiginlegur rythmiskur bakgrunnur og ást þeirra á jazz sem gerði útslagið og hugmynd að samvinnu kviknaði.

Síðastliðið haust létu þau svo verða af því að sameina raddir og tóna í ljúfum haust tónleikum sem haldnir voru í Árbæjarkirkju. Þar buðu þau upp á sígildar jazz- og dægurlagaperlur á íslensku. Það heppnaðist svo vel að þau ákváðu að endurtaka leikinn, nú í Hannesarholti.

Tónseðillinn sem þau bjóða uppá á þessu september kvöldi verður heldur líflegri og fjölbreyttari en þar mun verða hægt að hlýða á íslenskar perlur í yngri kantinum, settar í nýjan búning gítarleiks og radda og hvergi langt í jazz áhrifin. Í bland munu svo slæðast með eitt og eitt frumsamið frá hverju og einu þeirra.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger