© 2025 Tix Miðasala
Hafnarborg
•
14. júní
Miðaverð frá
4.200 kr.
TÍMINN OG VATNIÐ - SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG
Hjónin Rannveig Káradóttir, sópransöngkona og Peter Aisher, tenór, ásamt píanóleikaranum Hrönn Þráinsdóttur flytja ljóðatónleika þar sem tíminn og vatnið eru í aðalhlutverki. Hinar ýmsu birtingarmyndir þessara óstöðvandi afla flæða óhindraðar í gegnum verk eftir Duparc, Bizet, Fauré, Schubert, Clöru Schumann, Wolf, Vaughan Williams og fleiri. Sérhvert tungumál hefur sína áferð og hinir mismunandi tónaheimar blása lífi í hugleiðingar um ísblátt vatn, vængjaðar stundir og tímans djúpu sár. Rauður þráður í formi tónsetninga Helga Rafns Ingvarssonar á íslenskum ljóðum saumar þessi ólíku tónverk saman í fallega heild sem hefst á nokkurs konar sönglesi og vefur sig liðlega í gegnum árstíðirnar. Sérhver árstíð hefur sitt eigið tilfinningalitróf sem oft endurspeglast í fasa vatnsins hverju sinni og í tónlistinni er einnig margsinnis hægt að greina hreyfingu þess og stefnu. Frumflutningur á lagi Helga Rafns, Hallar nú haustrænum dögum, við ljóð Sæmundar G. Jóhannessonar, sem var sérstaklega samið í tilefni þessara tónleika, mun skipa sérstakan og eftirminnilegan sess í þessari tónlistarveislu.
Rannveig Káradóttir sópran lauk Master of Music in Performance gráðu frá Royal College
of Music í London eftir nám á Íslandi og Ítalíu. Hún hefur sungið hlutverk Violettu í La traviata, Donnu Önnu úr Don Giovanni og Mimì í la Bohème á Rye Arts Festival með Euphonia Opera Company og hlutverk Violettu í Drayton Arms Theatre í London. Rannveig ferðaðist víða um Evrópu með óperunni Be with me now í samvinnu við ENOA sem var frumsýnd á Aix-en-Provence Festival 2015 með frekari sýningum í Amsterdam, París, München, Lissabon, Varsjá, Brussel og Aldebourg. Hún fór með hlutverk Cio-Cio-San úr Madam Butterfly hjá Menter Rhosygilwen í Wales, Tatyönu í Eugin Onegin í Whitgift Theatre í South Croydon og Violettu í Château de Panloy í Frakklandi með Westminster Opera. Á árunum 2018 til 2023 var hún gestasöngvari og síðan fastráðin við Landestheater Coburg og fór meðal annars með hlutverk Lauru í Neues vom Tage, Fyrstu dömu í Töfraflautunni, Fiordiligi í Così fan tutte, Fedoru í die Zirkusprinzessin og Rusölku í Fishing for Rusalka. Ást Rannveigar á íslenskum sönglögum varð til þess að hún gaf út diskinn Krot — Íslensk sönglög árið 2016 með Birnu Hallgrímsdóttur, píanóleikara.
Peter Aisher tenór hóf krefjandi tónlistarnám tíu ára gamall sem kórdrengur í Windsor Castle þar sem hann söng átta guðþjónustur á viku með kirkjukórnum og lærði á píanó og klarinett, en hann leikur einnig á saxófón og rafmagnsbassa. Peter lærði stjarneðlisfræði við háskólann í Cambridge þar sem hann var á kórstyrk við Clare College. Eftir að hafa lokið meistaranámi sínu hóf hann framhaldsnám í Royal College of Music og lærði klassískan söng undir handleiðslu Tim Evans-Jones. Hann vann til fjölmargra verðlauna, útskrifaðist með láði og fékk í kjölfarið inngöngu í RCM International Opera School. Árið 2016 flutti hann til Þýskalands og fékk stöðu sem unglistamaður við Deutsche Oper am Rhein í Düsseldorf þar sem hann kom fram í um það bil 120 óperusýningum yfir tvö leikár. Sem fastráðinn einsöngvari við Landestheater Coburg fór hann meðal annars með hlutverk Tamino í Töfraflautunni, Ferrando í Così fan tutte, Tom Rakewell í Rake’s Progress og Edgardo í Lucia di Lammermoor. Hann söng einnig veigamikil hlutverk í óperettunum Vetter aus Dingsda, Wiener Blut og Die Fledermaus.
Hrönn Þráinsdóttir stundaði framhaldsnám við píanóleik við Staatliche Hochschule für Musik í Freiburg og lauk þaðan diplóma kennaraprófi vorið 2004 og tók meðleik við ljóðasöng sem aukafag. Kennarar hennar voru Dr.Tibor Szász og Hans-Peter Müller. Að því loknu nam hún við ljóðasöngdeild Tónlistarháskólans í Stuttgart undir handleiðslu Cornelis Witthoefft og lauk sérhæfðu diplómanámi sumarið 2007. Hrönn hefur komið fram á tónleikum víða sem einleikari, meðleikari og við flutning kammertónlistar auk þess að hafa hljóðritað fyrir útvarp og leikið inn á geisladiska. Hún hefur verið virk í uppeldisstarfi ungra söngvara, verið tónlistarstjóri uppfærslna hjá óperudeild Söngskólans í Reykjavík þar sem fluttar hafa verið perlur óperubókmenntanna. Hún hefur einnig ferðast víða um land og kynnt óperutónlist og hið íslenska sönglag fyrir grunnskólabörn í öllum landshlutum. Hún er einn helsti meðleikari óperusöngvara á Íslandi og hefur verið afar virk í tónleikahaldi á Íslandi. Hrönn er kennari við Söngskólann í Reykjavík, Söngskóla Sigurðar Demetz og við Menntaskóla í tónlist, MÍT.
Athugið að hægt er að kaupa hátíðarpassa á 14.900 kr. sem gildir á alla tónleika á
Sönghátíð í Hafnarborg 14.6.-29.6.2025. Takmarkað upplag er í boði.
EINA SUMARNÓTT
SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG
14.6–29.6.2025
TÓNLEIKAR:
TÍMINN OG VATNIÐ
Lau. 14.6. kl. 17:00
Rannveig Káradóttir, Peter Aisher, Hrönn Þráinsdóttir
ÞAÐ VAR EITT KVÖLD
Sun. 15.6. kl. 17:00
Mótettukórinn, Stefan Sand
ÍSLENSK EINSÖNGSLÖG Í MINNINGU JÓNASAR INGIMUNDARSONAR
Lau. 21.6. kl. 17:00
Kristinn Sigmundsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú), Auður Gunnarsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Hrönn Þráinsdóttir, Helga Bryndís Magnúsdóttir, Francisco Javier Jáuregui
DRAUMAR ÚR NORÐRI
Sun. 22.6. kl. 17:00
Jóna G. Kolbrúnardóttir, Kristín Sveinsdóttir, Unnsteinn Árnason, Eva Þyri Hilmarsdóttir
MASTER CLASS TÓNLEIKAR
Fim. 26.6. kl. 20:00
Nemendur Kristins Sigmundssonar, Helga Bryndís Magnúsdóttir
FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR
Fös. 27.6. kl. 17:00
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
ONE'S FOR SORROW, TWO'S FOR JOY
Lau. 28.6. kl. 17:00
Tríó Trëi: Mara Miribung, Gizem Simsek, Abélia Nordmann
ÓPERUGALA
Sun. 29.6. kl. 17:00
Bryndís Guðjónsdóttir, Eggert Reginn Kjartansson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Jóhann Kristinsson, Elena Postumi
Eina sumarnótt
Sönghátíð í Hafnarborg 2025
Hin árlega Sönghátíð í Hafnarborg fer fram dagana 14.–29. júní 2025 undir heitinu Eina sumarnótt, sem vísar í lag Jóns Nordal Hvert örstutt spor við ljóð eftir Halldór Laxness.
Hátíðin býður upp á átta opinbera tónleika í aðalsal Hafnarborgar með vönduðum tónlistarmönnum af ólíkum kynslóðum. Alls taka á sjöunda tug tónlistarmanna virkan þátt í hátíðinni í ár. Sumir þeirra eru búsettir á Íslandi en aðrir koma sérstaklega til landsins til að koma fram, þar á meðal söngvararnir Jóhann Kristinsson, Rannveig Káradóttir, Peter Aisher, Trio Trëi og píanóleikarinn Elena Postumi.
Á Sönghátíð má hlusta á fjölbreytta tónleika með gamalli og splunkunýrri íslenskri og erlendri tónlist. Þar verður íslenska einsöngslagið í hávegum haft á sérstökum tónleikum tileinkuðum píanóleikaranum Jónasi Ingimundarsyni sem lést nýlega. Einnig má heyra erlendan ljóðasöng, þjóðlög, kórverk, frumsamin verk og atriði úr óperum.
Á hátíðinni syngja ekki einungis sumir af okkar reyndustu klassísku söngvurum eins og Kristinn Sigmundsson og Diddú (Sigrún Hjálmtýsdóttir), heldur einnig þeir sem rétt eru að hasla sér völl núna og bjartar vonir framtíðarinnar.
Sönghátíð í Hafnarborg hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins 2020. Hún var stofnuð árið 2017 og fer því níunda árlega hátíðin fram í ár. Auk tónleika býður hún upp á master class námskeið Kristins Sigmundssonar fyrir söngnemendur og söngvara, tónlistar- og myndlistarnámskeið fyrir 6–12 ára, tónlistarsmiðju fyrir 3–5 ára með foreldrum og krílasöng fyrir 6–18 mánaða með foreldrum.
Markmið hátíðarinnar er að koma list raddarinnar á framfæri með tónleikum og námskeiðum. Jafnframt er horft til framtíðar með því að birta á YouTube síðu hátíðarinnar viðtöl við söngvara og valdar myndbandsupptökur af tónleikum.
Sönghátíð í Hafnarborg er sjálfstæð hátíð, sem haldin er í gjöfulu samstarfi við Hafnarborg. Hátíðin í ár nýtur stuðnings Hafnarfjarðarbæjar, Tónlistarsjóðs, Menningarsjóðs FÍH og erlendra styrkja. Við þökkum kærlega stuðninginn.
Góða skemmtun!
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui,
stofnendur og stjórnendur Sönghátíðar í Hafnarborg.
Dagskrá hátíðarinnar má skoða á vefsíðunni www.songhatid.com
Miðasalan fer fram á Tix.
NÁMSKEIÐ Á SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG:
SÖNGSMIÐJA OG MYNDLISTARNÁMSKEIÐ
23. júní – 27. júní
9:00–12:00 & 13:00–16:00
Fyrir 6–12 ára
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Ýr Káradóttir, Unnur Mjöll S. Leifsdóttir
TÓNLISTARSMIÐJA
28. júní
kl. 11:00–11:45
kl. 13:00–13:45
Valgerður Jónsdóttir
Fyrir 3–5 ára með foreldrum
MASTER CLASS
23.–26. júní
kl. 9:30–16:30
Kristinn Sigmundsson
Fyrir söngnemendur og söngvara
KRÍLASÖNGUR
29. júní
kl. 11:00–11:45
kl. 13:00 og 13:45
Svafa Þórhallsdóttir
Fyrir 6–18 mánaða með foreldrum
Skráning á námskeið fer fram í gegnum vefsíðu hátíðarinnar: www.songhatid.com