ONE'S FOR SORROW, TWO'S FOR JOY – SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG

Hafnarborg

28. júní

Miðaverð frá

4.200 kr.

ONE'S FOR SORROW, TWO'S FOR JOY

Mara Miribung, Gizem Simsek og Abélia Nordmann í Tríó Trëi flytja þjóðlagatónlist frá ólíkum menningarheimum sem og eigin tónsmíðar. Þær velta því fyrir sér hvað það þýðir að vera manneskja. Það þema birtist í tónlist þeirra, bæði á sviðsettum tónleikum og í þverfaglegu samstarfi. Tónlistarkonurnar þrjár flétta saman ólíkan bakgrunn sinn, tónlist úr austri og vestri og fagna fjölbreytileikanum í öllum sínum myndum. 

Tónleikarnir One’s for sorrow, two’s for joy eru innblásnir af kvenkyns persónum sem fylgja fæðingu og dauða í söng. Trëi er staðsett í Basel. Nafn tríósins kemur frá ladínsku, retórómanskri minnihlutamállýsku

sem töluð er í ítölsku Ölpunum.

ABÉLIA NORDMANN (Þýskaland/Frakkland/Sviss) stýrir kórum og uppfærslum í Basel og annars staðar í Sviss. Hún er stjórnandi barnakórsins Bühnen Bern, Ensemble Choeur3 og Contrapunkt kórsins. Með TRËI (Nordmann, Simsek, Miribung) syngur hún, semur og flytur þjóðlög frá ýmsum menningarheimum og eigin verk. Verk hennar og útsetningar eru flutt af barna- og fullorðinskórum. Abélia Nordmann er meðlimur í menningarráði Basellands og meðlimur í listrænni ráðgjafarnefnd Evrópsku unglingakórahátíðarinnar í Basel. Verk hennar fjalla alltaf um félagsleg, vistfræðileg og stjórnmálaleg málefni.

https://www.abelianordmann.org/

GIZEM SIMSEK (Tyrkland/Bretland) fæddist í Istanbúl, en faðir hennar er tyrkneskur og móðir hennar skosk. Hún bjó þar í 18 ár og flutti síðan til Sviss vegna trúarlegs og pólitísks þrýstings. Lagaval hennar spannar allt frá vestrænni klassískri tónlist til austurlenskrar tónlistar, með tyrkneskri þjóðlagatónlist, spuna, levantískri framúrstefnulegri þjóðlagatónlist og eigin tónsmíðum. Söngur hennar einkennist af belting, búlgörskum klanghljóðum, tilraunum með mongólskan hálssöng, yfirtónasöng og litum vestræns barokks. Hún býr og

starfar í Basel. www.gizemsimsek.earth

MARA MIRIBUNG (Ítalía) fæddist í Bolzano og ólst upp í dal í Ladin-fjallgarðinum í Dólómítafjöllum. Hún útskrifaðist frá Guildhall School of Music and Drama í London og starfar sem sellóleikari og flytjandi á tónleikum og í leiksýningum. Hún semur fyrir danssýningar og kemur fram í leikhúsi (Theatre Basel, Residenztheater München, Berlínaróperan). Hún hefur lengi unnið með leikstjóranum Thom Luz en uppfærslur hans hafa verið settar upp á stöðum eins og Berlin Theatertreffen, Kammerspiele München, Feneyjatvíæringnum, Kampnagel-hátíðinni í Hamborg, Stadsschouwburg Amsterdam og fleirum. Sem barokksellóleikari og hljómsveitarspilari starfar hún í alþjóðlegum hljómsveitum. Með hljómsveitinni TRËI syngur Mara í tónleikaverkefnum og þverfaglegu samstarfi. Einsöngsverkefni hennar „Sad Songs for a Crocodile“ er safn trúbador-popplaga fyrir selló, söng og looper. Hún býr sem sjálfstætt starfandi listamaður í Basel. www.maramiribung.com

Athugið að hægt er að kaupa hátíðarpassa á 14.900 kr. sem gildir á alla tónleika á

Sönghátíð í Hafnarborg 14.6.-29.6.2025. Takmarkað upplag er í boði.

EINA SUMARNÓTT

SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG

14.6–29.6.2025

TÓNLEIKAR:

TÍMINN OG VATNIÐ

Lau. 14.6. kl. 17:00

Rannveig Káradóttir, Peter Aisher, Hrönn Þráinsdóttir

ÞAÐ VAR EITT KVÖLD

Sun. 15.6. kl. 17:00

Mótettukórinn, Stefan Sand

ÍSLENSK EINSÖNGSLÖG Í MINNINGU JÓNASAR INGIMUNDARSONAR

Lau. 21.6. kl. 17:00

Kristinn Sigmundsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú), Auður Gunnarsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Hrönn Þráinsdóttir, Helga Bryndís Magnúsdóttir, Francisco Javier Jáuregui

DRAUMAR ÚR NORÐRI

Sun. 22.6. kl. 17:00

Jóna G. Kolbrúnardóttir, Kristín Sveinsdóttir, Unnsteinn Árnason, Eva Þyri Hilmarsdóttir

MASTER CLASS TÓNLEIKAR

Fim. 26.6. kl. 20:00

Nemendur Kristins Sigmundssonar, Helga Bryndís Magnúsdóttir

FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR

Fös. 27.6. kl. 17:00

Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir

ONE'S FOR SORROW, TWO'S FOR JOY

Lau. 28.6. kl. 17:00

Tríó Trëi: Mara Miribung, Gizem Simsek, Abélia Nordmann

ÓPERUGALA

Sun. 29.6. kl. 17:00

Bryndís Guðjónsdóttir, Eggert Reginn Kjartansson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Jóhann Kristinsson, Elena Postumi

Eina sumarnótt

Sönghátíð í Hafnarborg 2025

Hin árlega Sönghátíð í Hafnarborg fer fram dagana 14.–29. júní 2025 undir heitinu Eina sumarnótt, sem vísar í lag Jóns Nordal Hvert örstutt spor við ljóð eftir Halldór Laxness.

Hátíðin býður upp á átta opinbera tónleika í aðalsal Hafnarborgar með vönduðum tónlistarmönnum af ólíkum kynslóðum. Alls taka á sjöunda tug tónlistarmanna virkan þátt í hátíðinni í ár. Sumir þeirra eru búsettir á Íslandi en aðrir koma sérstaklega til landsins til að koma fram, þar á meðal söngvararnir Jóhann Kristinsson, Rannveig Káradóttir, Peter Aisher, Trio Trëi og píanóleikarinn Elena Postumi.

Á Sönghátíð má hlusta á fjölbreytta tónleika með gamalli og splunkunýrri íslenskri og erlendri tónlist. Þar verður íslenska einsöngslagið í hávegum haft á sérstökum tónleikum tileinkuðum píanóleikaranum Jónasi Ingimundarsyni sem lést nýlega. Einnig má heyra erlendan ljóðasöng, þjóðlög, kórverk, frumsamin verk og atriði úr óperum.

Á hátíðinni syngja ekki einungis sumir af okkar reyndustu klassísku söngvurum eins og Kristinn Sigmundsson og Diddú (Sigrún Hjálmtýsdóttir), heldur einnig þeir sem rétt eru að hasla sér völl núna og bjartar vonir framtíðarinnar.

Sönghátíð í Hafnarborg hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins 2020. Hún var stofnuð árið 2017 og fer því níunda árlega hátíðin fram í ár. Auk tónleika býður hún upp á master class námskeið Kristins Sigmundssonar fyrir söngnemendur og söngvara, tónlistar- og myndlistarnámskeið fyrir 6–12 ára, tónlistarsmiðju fyrir 3–5 ára með foreldrum og krílasöng fyrir 6–18 mánaða með foreldrum.

Markmið hátíðarinnar er að koma list raddarinnar á framfæri með tónleikum og námskeiðum. Jafnframt er horft til framtíðar með því að birta á YouTube síðu hátíðarinnar viðtöl við söngvara og valdar myndbandsupptökur af tónleikum.

Sönghátíð í Hafnarborg er sjálfstæð hátíð, sem haldin er í gjöfulu samstarfi við Hafnarborg. Hátíðin í ár nýtur stuðnings Hafnarfjarðarbæjar, Tónlistarsjóðs, Menningarsjóðs FÍH og erlendra styrkja. Við þökkum kærlega stuðninginn.

Góða skemmtun!

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui,

stofnendur og stjórnendur Sönghátíðar í Hafnarborg.

Dagskrá hátíðarinnar má skoða á vefsíðunni www.songhatid.com

Miðasalan fer fram á Tix.

NÁMSKEIÐ Á SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG:

SÖNGSMIÐJA OG MYNDLISTARNÁMSKEIÐ

23. júní – 27. júní

9:00–12:00 & 13:00–16:00

Fyrir 6–12 ára

Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Ýr Káradóttir, Unnur Mjöll S. Leifsdóttir

TÓNLISTARSMIÐJA

28. júní

kl. 11:00–11:45

kl. 13:00–13:45

Valgerður Jónsdóttir

Fyrir 3–5 ára með foreldrum

MASTER CLASS

23.–26. júní

kl. 9:30–16:30

Kristinn Sigmundsson

Fyrir söngnemendur og söngvara

KRÍLASÖNGUR

29. júní

kl. 11:00–11:45

kl. 13:00 og 13:45

Svafa Þórhallsdóttir

Fyrir 6–18 mánaða með foreldrum

Skráning á námskeið fer fram í gegnum vefsíðu hátíðarinnar: www.songhatid.com

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger