© 2025 Tix Miðasala
Hafnarborg
•
21. júní
Miðaverð frá
4.200 kr.
ÍSLENSK EINSÖNGSLÖG Í MINNINGU JÓNASAR INGIMUNDARSONAR
Íslenska einsöngslagið verður í hávegum haft á tónleikum sem Sönghátíð í Hafnarborg helgar minningu Jónasar Ingimundarsonar, sem lést nýlega. Jónas var ekki aðeins virtur píanóleikari heldur einnig kórstjóri, kennari og ötull kynningarfulltrúi tónlistar og þá sérstaklega íslenska einsöngslagsins. Hann hélt á ferli sínum fjölda tónleika á Íslandi og erlendis ásamt því að leika inn á fjöldann allan af hljómplötum- og diskum. Jónas vann með mörgum af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar en samstarf hans við Kristinn Sigmundsson óperusöngvara var sérstaklega farsælt.
Til að heiðra minningu Jónasar koma fram söngvararnir Kristinn Sigmundsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú), Auður Gunnarsdóttir og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, píanóleikararnir Hrönn Þráinsdóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir sem báðar lærðu hjá Jónasi, og gítarleikarinn Francisco Javier Jáuregui. Þau flytja sum af ástsælustu sönglögum Íslendinga sem og lög eftir Jónas sjálfan.
Jónas Ingimundarson stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Að námi loknu starfaði hann sem einleikari, meðleikari, kórstjóri, píanókennari á öllum stigum og uppfræðari á tónleikum, í skólum, í útvarpi og sjónvarpi. Með einlægri hugsjón og kímnigáfu náði Jónas að laða að sér áheyrendur og skapa hlýlegt andrúmsloft í kringum sig.
Verkefnin stór og smá eru of mörg til að lista öll en nefna má: Tónlist fyrir alla, Ljóðatónleikar Gerðubergs, Tíbrártónleikar Salarins, skipulagðir tónleikar á landsbyggðinni, Hátíðartónleikar Rótarýhreyfingarinnar og Söngdagar í Skálholti.
Áberandi í ævistarfi Jónasar er farsælt samstarf hans við helstu söngvara þjóðarinnar. Það starf skilaði ótal verkefnum sem sum eru nefnd hér ofar, einstökum tónleikum, tónleikaferðalögum og hljóðritunum. Einnig mætti segja að Salurinn, tónlistarhús Kópavogs, hefði aldrei litið dagsins ljós án ötullar aðkomu Jónasar.
Jónas hlaut margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín og framlag til íslenskrar tónlistar. Má þar nefna starfslauna listamanna og heiðurslaun Alþingis. Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1994 fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar, hlaut Dannebrog-orðuna dönsku 1996, fyrstu heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna 2001 og var útnefndur heiðurslistamaður Kópavogs 2004 og heiðursborgari bæjarins 2011. Loks má nefna að 2006 sæmdi Steinway og Sons í Hamborg Jónas titlinum „Steinway artist“.
Eiginkona Jónasar var Ágústa Hauksdóttir píanókennari en þau giftust 1966. Kærleikur þeirra og samvinna er öllum minnisstæður sem til þekktu og víst að Jónas hefði seint unnið sín afrek án hennar.
Athugið að hægt er að kaupa hátíðarpassa á 14.900 kr. sem gildir á alla tónleika á Sönghátíð í Hafnarborg 14.6.–29.6.2025. Takmarkað upplag er í boði.
EINA SUMARNÓTT
SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG
14.6–29.6.2025
TÓNLEIKAR:
TÍMINN OG VATNIÐ
Lau. 14.6. kl. 17:00
Rannveig Káradóttir, Peter Aisher, Hrönn Þráinsdóttir
ÞAÐ VAR EITT KVÖLD
Sun. 15.6. kl. 17:00
Mótettukórinn, Stefan Sand
ÍSLENSK EINSÖNGSLÖG Í MINNINGU JÓNASAR INGIMUNDARSONAR
Lau. 21.6. kl. 17:00
Kristinn Sigmundsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú), Auður Gunnarsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Hrönn Þráinsdóttir, Helga Bryndís Magnúsdóttir, Francisco Javier Jáuregui
DRAUMAR ÚR NORÐRI
Sun. 22.6. kl. 17:00
Jóna G. Kolbrúnardóttir, Kristín Sveinsdóttir, Unnsteinn Árnason, Eva Þyri Hilmarsdóttir
MASTER CLASS TÓNLEIKAR
Fim. 26.6. kl. 20:00
Nemendur Kristins Sigmundssonar, Helga Bryndís Magnúsdóttir
FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR
Fös. 27.6. kl. 17:00
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
ONE'S FOR SORROW, TWO'S FOR JOY
Lau. 28.6. kl. 17:00
Tríó Trëi: Mara Miribung, Gizem Simsek, Abélia Nordmann
ÓPERUGALA
Sun. 29.6. kl. 17:00
Bryndís Guðjónsdóttir, Eggert Reginn Kjartansson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Jóhann Kristinsson, Elena Postumi
Eina sumarnótt
Sönghátíð í Hafnarborg 2025
Hin árlega Sönghátíð í Hafnarborg fer fram dagana 14.–29. júní 2025 undir heitinu Eina sumarnótt, sem vísar í lag Jóns Nordal Hvert örstutt spor við ljóð eftir Halldór Laxness.
Hátíðin býður upp á átta opinbera tónleika í aðalsal Hafnarborgar með vönduðum tónlistarmönnum af ólíkum kynslóðum. Alls taka á sjöunda tug tónlistarmanna virkan þátt í hátíðinni í ár. Sumir þeirra eru búsettir á Íslandi en aðrir koma sérstaklega til landsins til að koma fram, þar á meðal söngvararnir Jóhann Kristinsson, Rannveig Káradóttir, Peter Aisher, Trio Trëi og píanóleikarinn Elena Postumi.
Á Sönghátíð má hlusta á fjölbreytta tónleika með gamalli og splunkunýrri íslenskri og erlendri tónlist. Þar verður íslenska einsöngslagið í hávegum haft á sérstökum tónleikum tileinkuðum píanóleikaranum Jónasi Ingimundarsyni sem lést nýlega. Einnig má heyra erlendan ljóðasöng, þjóðlög, kórverk, frumsamin verk og atriði úr óperum.
Á hátíðinni syngja ekki einungis sumir af okkar reyndustu klassísku söngvurum eins og Kristinn Sigmundsson og Diddú (Sigrún Hjálmtýsdóttir), heldur einnig þeir sem rétt eru að hasla sér völl núna og bjartar vonir framtíðarinnar.
Sönghátíð í Hafnarborg hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins 2020. Hún var stofnuð árið 2017 og fer því níunda árlega hátíðin fram í ár. Auk tónleika býður hún upp á master class námskeið Kristins Sigmundssonar fyrir söngnemendur og söngvara, tónlistar- og myndlistarnámskeið fyrir 6–12 ára, tónlistarsmiðju fyrir 3–5 ára með foreldrum og krílasöng fyrir 6–18 mánaða með foreldrum.
Markmið hátíðarinnar er að koma list raddarinnar á framfæri með tónleikum og námskeiðum. Jafnframt er horft til framtíðar með því að birta á YouTube síðu hátíðarinnar viðtöl við söngvara og valdar myndbandsupptökur af tónleikum.
Sönghátíð í Hafnarborg er sjálfstæð hátíð, sem haldin er í gjöfulu samstarfi við Hafnarborg. Hátíðin í ár nýtur stuðnings Hafnarfjarðarbæjar, Tónlistarsjóðs, Menningarsjóðs FÍH og erlendra styrkja. Við þökkum kærlega stuðninginn.
Góða skemmtun!
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui,
stofnendur og stjórnendur Sönghátíðar í Hafnarborg.
Dagskrá hátíðarinnar má skoða á vefsíðunni www.songhatid.com
Miðasalan fer fram á Tix.
NÁMSKEIÐ Á SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG:
SÖNGSMIÐJA OG MYNDLISTARNÁMSKEIÐ
23. júní – 27. júní
9:00–12:00 & 13:00–16:00
Fyrir 6–12 ára
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Ýr Káradóttir, Unnur Mjöll S. Leifsdóttir
TÓNLISTARSMIÐJA
28. júní
kl. 11:00–11:45
kl. 13:00–13:45
Valgerður Jónsdóttir
Fyrir 3–5 ára með foreldrum
MASTER CLASS
23.–26. júní
kl. 9:30–16:30
Kristinn Sigmundsson
Fyrir söngnemendur og söngvara
KRÍLASÖNGUR
29. júní
kl. 11:00–11:45
kl. 13:00 og 13:45
Svafa Þórhallsdóttir
Fyrir 6–18 mánaða með foreldrum
Skráning á námskeið fer fram í gegnum vefsíðu hátíðarinnar: www.songhatid.com