FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR – SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG

Hafnarborg

27. júní

Miðaverð frá

0 kr.

Fjölskyldutónleikar. Ókeypis aðgangur. Systurnar Hanna Ágústa og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir flytja fjöruga dagskrá fyrir alla fjölskylduna. 6-12 ára börn á myndlistar- og tónlistarnámskeiði Hafnarborgar og Sönghátíðar í Hafnarborg taka einnig þátt í tónleikunum.

Efnisskrá tónleikanna er úr ýmsum áttum, allt frá Disney sönglögum til Stuðmanna slagara og skapar tónlistin sannkallaðan ævintýraheim. Systurnar bregða sér í líki töfradrekans Paff og Prinsessunnar Sónatínu; bestu vinir sem komast í hann krappan þegar þau t.d. rekast á tónskrattann, þurfa að klífa tónstiga og lækna tónverk í baki svo eitthvað sé nefnt. Þau fá að sjálfsögðu hjálp frá kátum krökkum við þetta allt saman!

Hlökkum til að taka á móti ykkur!

EINA SUMARNÓTT

SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG

14.6-29.6.2025

TÓNLEIKAR:

TÍMINN OG VATNIÐ

Lau. 14.6. kl. 17:00

Rannveig Káradóttir, Peter Aisher, Hrönn Þráinsdóttir

ÞAÐ VAR EITT KVÖLD

Sun. 15.6. kl. 17:00

Mótettukórinn, Stefan Sand

ÍSLENSK EINSÖNGSLÖG Í MINNINGU JÓNASAR INGIMUNDARSONAR

Lau. 21.6. kl. 17:00

Kristinn Sigmundsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú), Auður Gunnarsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Hrönn Þráinsdóttir, Helga Bryndís Magnúsdóttir, Francisco Javier Jáuregui

DRAUMAR ÚR NORÐRI

Sun. 22.6. kl. 17:00

Jóna G. Kolbrúnardóttir, Kristín Sveinsdóttir, Unnsteinn Árnason, Eva Þyri Hilmarsdóttir

MASTER CLASS TÓNLEIKAR

Fim. 26.6. kl. 20:00

Nemendur Kristins Sigmundssonar, Helga Bryndís Magnúsdóttir

FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR

Fös. 27.6. kl. 17:00

Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir

ONE'S FOR SORROW, TWO'S FOR JOY

Lau. 28.6. kl. 17:00

Tríó Trëi: Mara Miribung, Gizem Simsek, Abélia Nordmann

ÓPERUGALA

Sun. 29.6. kl. 17:00

Bryndís Guðjónsdóttir, Eggert Reginn Kjartansson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Jóhann Kristinsson, Elena Postumi

Eina sumarnótt

Sönghátíð í Hafnarborg 2025

Hin árlega Sönghátíð í Hafnarborg fer fram dagana 14. - 29. júní 2025 undir heitinu Eina sumarnótt, sem vísar í lag Jóns Nordal Hvert örstutt spor við ljóð eftir Halldór Laxness.

Hátíðin by´ður upp a´ a´tta opinbera to´nleika i´ aðalsal Hafnarborgar með vo¨nduðum to´nlistarmo¨nnum af o´li´kum kynslo´ðum. Alls taka á sjöunda tug tónlistarmanna virkan þátt í hátíðinni í ár. Sumir þeirra eru búsettir á Íslandi en aðrir koma sérstaklega til landsins til að koma fram, þar á meðal söngvararnir Jóhann Kristinsson, Rannveig Káradóttir, Peter Aisher, Trio Trëi og píanóleikarinn Elena Postumi.

Á Sönghátíð ma´ hlusta a´ fjo¨lbreytta to´nleika með gamalli og splunkunýrri i´slenskri og erlendri to´nlist. Þar verður íslenska einsöngslagið í hávegum haft á sérstökum tónleikum tileinkuðum píanóleikaranum Jónasi Ingimundarsyni sem lést nýlega. Einnig má heyra erlendan ljo´ðasöng, þjóðlög, ko´rverk, frumsamin verk og atriði úr óperum.

A´ ha´ti´ðinni syngja ekki einungis sumir af okkar reyndustu klassísku söngvurum eins og Kristinn Sigmundsson og Diddú (Sigrún Hjálmtýsdóttir), heldur einnig þeir sem re´tt eru að hasla se´r vo¨ll nu´na og bjartar vonir framti´ðarinnar.

So¨ngha´ti´ð i´ Hafnarborg hlaut I´slensku to´nlistarverðlaunin sem To´nlistarha´ti´ð a´rsins 2020. Hu´n var stofnuð a´rið 2017 og fer því níunda árlega ha´ti´ðin fram í ár. Auk tónleika býður hún upp á master class námskeið Kristins Sigmundssonar fyrir söngnemendur og söngvara, tónlistar- og myndlistarnámskeið fyrir 6-12 ára, tónlistarsmiðju fyrir 3-5 ára með foreldrum og krílasöng fyrir 6-18 mánaða með foreldrum.

Markmið hátíðarinnar er að koma list raddarinnar a´ framfæri með tónleikum og námskeiðum. Jafnframt er horft til framtíðar með því að birta á YouTube síðu hátíðarinnar viðtöl við söngvara og valdar myndbandsupptökur af tónleikum.

Sönghátíð í Hafnarborg er sjálfstæð hátíð, sem haldin er í gjöfulu samstarfi við Hafnarborg. Hátíðin í ár nýtur stuðnings Hafnarfjarðarbæjar, Tónlistarsjóðs, Menningarsjóðs FÍH og erlendra styrkja. Við þökkum kærlega stuðninginn.

Góða skemmtun!

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui,

stofnendur og stjórnendur Sönghátíðar í Hafnarborg.

Dagskrá hátíðarinnar má skoða á vefsíðunni www.songhatid.com Miðasalan fer fram á Tix.

NÁMSKEIÐ Á SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG:

SÖNGSMIÐJA OG MYNDLISTARNÁMSKEIÐ

23. júní - 27. júní

9:00-12:00 & 13:00-16:00

Fyrir 6-12 ára

Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Ýr Káradóttir, Unnur Mjöll S. Leifsdóttir

TÓNLISTARSMIÐJA

28. júní

kl. 11:00-11:45

kl. 13:00-13:45

Valgerður Jónsdóttir

Fyrir 3-5 ára

með foreldrum

MASTER CLASS

23. - 26. júní

kl. 9:30-16:30

Kristinn Sigmundsson

Fyrir söngnemendur og söngvara

KRÍLASÖNGUR

29. júní

kl. 11:00-11:45

kl. 13:00 og 13:45

Svafa Þórhallsdóttir

Fyrir 6-18 mánaða með foreldrum

Skráning á námskeið fer fram í gegnum vefsíðu hátíðarinnar: www.songhatid.com

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger