Sóli Hólm á Hofsósi

Höfðaborg Hofsósi

20. júní

Miðaverð frá

5.500 kr.

Skástu skrítlur Sóla Hólm

Skemmtikrafturinn Sóli Hólm ætlar að stíga á stokk í Höfðaborg á Hofsósi. Sóli hefur sett upp sex stór uppistandsverk sem tugir þúsunda Íslendinga hafa séð og á Hofsósi fer hann yfir sína skástu spretti á ferlinum, eins og hann orðar það sjálfur. Búast má við því að heyra raddir fjölmargra Íslendinga á sviðinu, jafnvel þó enginn þeirra sé í raun á staðnum, því eins og alþjóð veit getur Sóli brugðið sér í allra kvikinda líki.

Ekki missa af Hólmaranum á Hofsósi!

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger