Aðventutónleikar Sinfóníunnar

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

4. desember

Miðaverð frá

2.990 kr.

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri: Fabio Biondi

Einleikari: Julia Hantschel

Efnisskrá

Arcangelo Corelli Concerto Grosso op. 6 nr. 8, Jólakonsertinn

Wolfgang Amadeus Mozart Eine kleine Nachtmusik

Johann Sebastian Bach Óbókonsert í d-moll

Wolfgang Amadeus Mozart Sinfónía nr. 10

Joseph Haydn Sinfónía nr. 49, Píslarsinfónían

Sinfóníuhljómsveit Íslands slær hátíðlegan takt í upphafi aðventu með komu ítalska hljómsveitarstjórans og fiðluleikarans Fabio Biondi en hann er einn af þekktustu stjórnendum samtímans á sviði tónlistar frá barokk- og klassíska tímanum. Biondi stofnaði kammersveitina Europa Galante árið 1989 og hefur gefið út yfir 60 hljómdiska með þeirri virtu sveit. Hér leiðir hann Sinfóníuhljómsveit Íslands í efnisskrá sem inniheldur margar þekktar perlur úr tónbókmenntum fyrri tíma.

Einleikari tónleikanna er óbóleikarinn Julia Hantschel, en hún hefur leitt óbódeild Sinfóníuhljómsveitarinnar frá árinu 2018 og leikur hinn gullfallega óbókonsert í d-moll eftir Johann Sebastian Bach. Meðal annarra verka er stutt og tápmikil sinfónía nr. 10 sem Mozart samdi á fyrstu ferð sinni um Ítalíu, þá 14 ára gamall. Sinfónía nr. 49 eftir Joseph Haydn er á hinn bóginn verk eftir þroskaðan listamann, full af ákefð og innri hvöt.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger