© 2026 Tix Miðasala

Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
18. apríl
Sala hefst
10. mars 2026, 10:00
(eftir 1 mánuð)




Hljómsveitarstjóri: Mirian Khukhunaishvili
Einleikari: Sigurgeir Agnarsson
Kynnir: Tobba tófa – Steinunn Arinbjarnardóttir
Efnisskrá
Fjölbreytt og skemmtileg tónlist
Barnastundir Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru sniðnar að allra yngstu áheyrendum hljómsveitarinnar. Þær eru haldnar á laugardagsmorgnum og eru um hálftímalangar í opnu og fallegu umhverfi Hörpu, í Flóa. Áhersla er lögð á létt og vinalegt andrúmsloft og nánd barnanna við hljómsveitina. Á fyrstu Barnastund vetrarins eru dýrin stór og smá í forgrunni. Þar hljóma m.a. Dýravísur, Kattadúettinn, Krummi krunkar úti og lög úr Dýrunum í Hálsaskógi og Skógarlífi. Kynnir í Barnastundinni er engin önnur en Tobba tófa, og Maxímús Músíkús kemur að sjálfsögðu í heimsókn í Flóa.

