© 2025 Tix Miðasala
Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
23. ágúst
Sala hefst
23. ágúst 2025, 10:00
(eftir 3 vikur)
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjóri: Nicholas Swensen
Einsöngvari og kynnir: Unnsteinn Manuel Stefánsson
Efnisskrá
Efnisskrá kynnt síðar
Á Menningarnótt í Reykjavík býður Sinfóníuhljómsveit Íslands gestum og gangandi upp á fjölbreytta og spennandi tónleika fyrir alla fjölskylduna. Á tónleikunum í ár er það hinn fjölhæfi tónlistarmaður Unnsteinn Manuel Stefánsson sem tekur á móti gestum í Eldborg. Hann veltir m.a. fyrir sér spurningunni hvernig tónlist Sinfóníuhljómsveitin muni leika á 150 ára afmæli sínu árið 2100. Hljómsveitin fagnaði einmitt 75 ára afmæli sínu á nýliðnu starfsári. Á tónleikunum á Menningarnótt má heyra tónverk sem hafa skírskotun til framtíðarinnar, eða gerðu það á sínum tíma, eftir tónskáld eins og Jóhann Jóhannsson, Caroline Shaw, Ludwig van Beethoven og Björk. Á tónleikunum syngur hann einnig lagið Glow sem hljómsveitin Retro Stefson gerði vinsælt á sínum tíma.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis og eru öll hjartanlega velkomin.
Hægt er að sækja miða á sinfonia.is og í miðasölu Hörpu á tónleikadegi frá kl. 10:00.