© 2025 Tix Miðasala
Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
14. nóvember
Sala hefst
11. júní 2025, 10:00
(eftir 4 daga)
Efnisskrá
Johann Sebastian Bach Sónata nr. 2 í a-moll BWV 1003
Johann Sebastian Bach Partita nr. 2 í d-moll BWV 1004
Einleikari
Liza Ferschtman
Hollenski fiðluleikarinn Liza Ferschtman er þekkt fyrir ástríðufullan flutning og góða tengingu við áheyrendur. Hún hefur hlotið mikla athygli og viðurkenningu fyrir einstaka túlkun sína á einleikssónötum Johanns Sebastians Bach og hér tekst hún á við tvö þessara lykilverka barokktímans. Sónötur og partítur meistarans fyrir einleiksfiðlu eru sex talsins og þykja meðal hápunkta fiðlubókmennta í vestrænni tónlistarsögu. Þær voru að öllum líkindum samdar nálægt 1720, þegar Bach var í þjónustu prinsins af Anhalt-Köthen. Þessi ár einkenndust af miklum afköstum Bachs á sviði hljóðfæratónlistar en þá fæddust t.d. svíturnar sex fyrir einleiksselló, fjórar hljómsveitarsvítur og Brandenburgarkonsertarnir sex.
Í verkunum birtist fiðlan okkur sem fjölradda hljóðfæri og hinn þéttofni vefur Bachs gerir oft gríðarlegar kröfur til hljóðfæraleikarans. Lokaþáttur partítunnar sem hér hljómar, Sjakonna, er af mörgum álitin ein mikilfenglegasta tónsmíð sögunnar. Þýska tónskáldið Johannes Brahms skrifaði m.a. um verkið í bréfi til Clöru Schumann: „Á einn nótnastreng, fyrir lítið hljóðfæri ritar maðurinn [Bach] heila veröld af hinum dýpstu hugsunum og sterkustu tilfinningum.“ Liza Ferschtman leikur Fiðlukonsert nr. 1eftir Shostakovitsj með Sinfóníuhljómsveit Íslands daginn fyrir einleikstónleika hennar.