Gæðablóð

Þjóðleikhúsið

2 sýningar

Miðaverð frá

0 kr.

Rappari úr Vesturbænum, fyrrum knattspyrnumaður úr Garðabænum og tónlistarmaður úr miðbænum sameina krafta sína í skemmtilegri og hispurslausri sýningu þar sem þeir segja sögur úr eigin lífi.

Á undanförnum árum hefur leikhúslistafólk með fjölbreyttan bakgrunn miðlað sögum sínum með áhrifamiklum hætti í Þjóðleikhúsinu og veitt okkur öllum nýja innsýn inn í hinn margbreytilega veruleika okkar. Má þar nefna sýningar á borð við Góðan daginn faggi, Á rauðu ljósi og Taktu flugið beibí.

Nú er er komið að þeim Davíð Þór, Jónmundi og Unnsteini að helga sér Stóra sviðið! Þessir þrír listamenn eiga það sameiginlegt að vera rammíslenskir en geta hver um sig rakið uppruna sinn til tveggja heimsálfa. Í þessari einlægu sýningu deila þeir reynslu sinni og sviðsetja sprenghlægileg og grafalvarleg atvik úr eigin lífi sem afhjúpa samfélagið á óvæntan hátt.

Textaðar sýningar - nánari upplýsingar
Sýningarnar eru leiknar á íslensku. Enskur og íslenskur texti birtast á skjám sem komið er fyrir til hliðar við sviðið eða fyrir ofan það, eftir því sem við á hverju sinni. Miðasala veitir upplýsingar um hentugustu sætin hverju sinni fyrir þá sem vilja nýta sér textun. Textaðar sýningar henta vel þeim sem ekki tala íslensku eða eru að læra hana, eða búa við heyrnarskerðingu.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger