© 2025 Tix Miðasala
Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
22. janúar
Sala hefst
11. júní 2025, 10:00
(eftir 4 daga)
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjóri: Jan Söderblom
Einleikari: Verneri Pohjola
Efnisskrá
Lotta Wennäkoski Hava
Kaija Saariaho Hush, konsert fyrir trompet og hljómsveit
Johannes Brahms Sinfónía nr. 2
Það svífur finnskur andi yfir vötnum á þessum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hljómsveitarstjórinn Jan Söderblom starfar sem konsertmeistari í Fílharmóníusveitinni í Helsinki og einleikarinn Verneri Pohjola er óvenju fjölhæfur tónlistarmaður, jafnvígur á tilraunakenndan djass og samtímatónlist. Fá verk í finnsku tónlistarlífi hafa vakið jafn mikla athygli á undanförnum árum og hinn glæsilegi og tæknilega krefjandi trompetkonsert Hush sem var síðasta verkið sem tónskáldið Kaija Saariaho samdi fyrir andlát sitt árið 2023. Verkið frumflutti Pohjola ásamt finnsku útvarpshljómsveitinni skömmu síðar en í því tókst Saariaho á við eigin veikindi og sársauka á sérlega áhrifaríkan og einlægan máta. Á undan flutningnum á Hush stjórnar Söderblom verkinu Hava eftir hina finnsku Lottu Wennäkoski, litríku og dýnamísku tónverki. Á síðari hluta tónleikanna leiðir Söderblom svo flutning á hinni glæsilegu 2. sinfóníu Brahms frá fyrsta púlti í fiðlusveitinni en ekki frá hljómsveitarstjórapallinum, eins og venjan er.