© 2025 Tix Miðasala
Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
23. október
Sala hefst
11. júní 2025, 10:00
(eftir 4 daga)
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen
Einsöngvarar:
Nina Stemme
Stuart Skelton
Hanna Dóra Sturludóttir
Efnisskrá
Richard Wagner Forleikurinn að Meistarasöngvurunum Í Nürnberg
Ígor Stravinskíj Sinfónía í þremur þáttum
Richard Wagner Prelúdía að fyrsta Þætti úr Tristan Og Ísold
Tónlist úr öðrum þætti Tristan Og Ísold,
Liebestod úr þriðja þætti Tristan Og Ísold
Óperan um Tristan og Ísold eftir Richard Wagner er af mörgum talin eitt af meistaraverkum tónbókmenntanna. Hún hefur heillað áhorfendur með margslungnum vangaveltum sínum um ástina og lífið, en ekki síður með einstöku tónmáli sem hlaðið er ljóðrænni spennu og óvæntri framvindu. Á tónleikunum Sinfóníuhljómsveitar Íslands hljómar tónlist úr verkinu þar sem stórsöngvararnir Nina Stemme og Stuart Skelton fara með hlutverk elskendanna tveggja. Nina Stemme er fastagestur í stærstu óperu- og tónleikahúsum heims þar sem hún syngur mörg dramatískustu sópranhlutverk tónbókmenntanna.
Stuart Skelton hefur einnig skipað sér í röð fremstu tenóra samtímans, ekki síst fyrir túlkun sína á tónlist Wagners. Hanna Dóra Sturludóttir er ein kunnasta söngkona okkar Íslendinga og hefur sungið fjölbreytt hlutverk víða um heim. Hún syngur hlutverk Brangäne, þernu Ísoldar.
Það er mikill fengur fyrir alla unnendur óperutónlistar að sjá og heyra þessa stórsöngvara saman á sviði Eldborgar flytja tónlist úr þessari stórkostlegu óperu. Það er Eva Ollikainen, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem stjórnar flutningi á þessari mögnuðu tónlist Wagners og teflir einnig fram nýklassískri sinfóníu Stravinskíjs í þremur þáttum sem mótvægi við alla rómantíkina.