Alice Sara Ott leikur Ravel - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

11. september

Sala hefst

11. júní 2025, 10:00

(eftir 4 daga)

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri: Samuel Lee

Einleikari: Alice Sara Ott

Efnisskrá

Lili Boulanger D'un soir triste

Maurice Ravel Píanókonsert fyrir vinstri hönd

Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 7

Einleikari á þessum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Alice Sara Ott píanóleikari. Á undanförnum árum hefur stjarna hennar skinið skært. Hún hljóðritar fyrir útgáfufyrirtækið Deutsche Grammophon og vekur verðskuldaða athygli fyrir frískandi og forvitnilegt verkefnaval. Hér tekst Alice Sara á við hinn óvenjulega Píanókonsert fyrir vinstri hönd eftir Maurice Ravel en þetta áhrifaríka tónverk spratt af átökum fyrri heimsstyrjaldar þar sem píanóleikarinn Paul Wittgenstein missti hægri hönd. Að stríði loknu hélt hann áfram þjónustu við tónlistina og pantaði fjölmörg verk fyrir vinstri höndina eina. Ekkert þeirra lifir þó jafn góðu lífi og þessi frábæri konsert Ravels sem er vinsæll í tónleikasölum heimsins.

Sjöunda sinfónía Beethovens er eitt allra vinsælasta verk vestrænna tónbókmennta og uppáhaldssinfónía margra. Dramatísk uppbygging tónlistarinnar hefur gert það að verkum að hún hefur ratað inn í fjölmargar kvikmyndir en verkið er eitt þeirra sem alltaf stækkar í huga fólks við hverja hlustun.

Tónleikarnir hefjast hins vegar á fallegri og innhverfri túlkun franska tónskáldsins Lili Boulanger á D’un soir triste, kvöldhúminu, þar sem við mannfólkið leitum oft inn á við og opnum á eigin tilfinningar.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger