Óresteia

Þjóðleikhúsið

7 sýningar

Miðaverð frá

0 kr.

Hefnd kallar á hefnd

Margverðlaunaði leikstjórinn Benedict Andrews færir okkur magnþrungið meistaraverk

„Ég sá Trójuborg falla. Nú sé ég slátraranum slátrað.“

Drottningin Klítemnestra hefur engu gleymt. Þegar Agamemnon konungur snýr sigurreifur heim úr tíu ára herferð eru móttökurnar blóði drifnar.

Óresteia er nýtt og einstaklega kraftmikið leikverk eftir Benedict Andrews byggt á sígildum þríleik Æskílosar. Verkið hefur talað með máttugum hætti til mannkynsins, kynslóð eftir kynslóð, og á við okkur óþægilega brýnt erindi í dag.

Benedict Andrews hefur leikstýrt margverðlaunuðum sýningum í mörgum af helstu leikhúsum heims. Sýningar hans í Þjóðleikhúsinu, Ex, Ellen B., Macbeth og Lé konungur, hafa sannarlega slegið í gegn hjá áhorfendum og hlotið fjölda Grímuverðlauna. Í fyrstu sýningu hans í Kassanum birtast okkur vægðarlaus átök innan fjölskyldu og skelfilegar afleiðingar stríðs og blóðhefnda.

Benedict hefur valið til liðs við sig hóp fimm framúrskarandi leikara sem ögra sjálfum sér á nýjan hátt í krefjandi sviðsetningu. Líkamleg nánd leikaranna, hrá fegurð textans og áhrifamáttur myndmáls og tónlistar bjóða upp á einstaka listræna upplifun.

Leikarar: Elín Hall, Hilmir Snær Guðnason, Ebba Katrín Finnsdóttir, Nína Dögg Filippusdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson.

„Benedict Andrews kominn aftur til að leikstýra í Þjóðleikhúsinu, heimsviðburður”

SJ Frbl (Um Ellen B.)

eftir Benedict Andrews

Byggt á þríleik Æskílosar

Þýðing: Kristín Eiríksdóttir

Leikstjórn: Benedict Andrews

Leikmynd: Elín Hansdóttir

Búningar: Filippía I. Elísdóttir

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist: Bára Gísladóttir

Hljóðhönnun: Aron Þór Arnarsson

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger