Skyggnilýsing með Valgerði Bachmann á föstudaginn þrettándi

Bíó Paradís

13. júní

Miðaverð frá

4.000 kr.

Skyggnilýsing með Valgerði Bachmann

Skyggnilýsing með Valgerði Bachmann verður haldin í Bíó paradís þann 13.06.2025 eða FÖSTUDAGINN ÞRETTÁNDA í sal 2.

Húsið opnar kl 18:30.

Ekki verður hleypt inn eftir kl 19:00.

Aðgangseyrir 4.000 kr

Bíó Paradís verður með allt til alls í sjoppunni og verður með Happy Hour ( Gleðistund ) milli 17:00-19:00

Um Valgerði Bachmann

Valgerður Bachmann hefur starfað opinberlega í andlegum málefnum síðan 2009 og bíður upp á einkatíma í spá og miðlun, þar sem skoðað er það sem fram undan er hjá viðkomandi svo eitthvað sé nefnt, einnig koma ættingjar og vinir í gegn. Valgerður er Reikimeistari, með Höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun og heilun. Er jóga og jóga Nidra kennari, haldið jóga námskeið fyrir börn og jóga Nidra tíma fyrir fullorðna. Haldið Sígaunanámskeið, Alheimsorkunámskeið, Leiðin Þín námskeið, Draumanámskeið, Teiknimiðilun og verið með Þróunarhópa hjá Sálarrannsóknarfélag Íslands, er Markþjálfi, hefur unnið mikið með börnum og fullorðnum tengt andlega málefnum, hreinsað hús og haldið skyggnilýsingar um landið. Gefið út Alheimsorku spilin, Written in the stars spilin, Leiðin þín, barnabókina Hulda og töfrasteinninn, Litlu Stafabókina og Litlu tölubókina.

Valgerður er með aðstöðu á höfuðborgarsvæðið – alheimsorka.is

Hlakka til að sjá og eiga yndislegan tíma með þér/ykkur

Valgerður Bachmann

Það er 18 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger