Jazzkvartett Ásgeirs Ásgeirssonar

Iðnó Jazz

6. júlí

Miðaverð frá

2.000 kr.

Jazzkvartett Ásgeirs Ásgeirssonar

Kvartettinn mun leika frumsamin lög Ásgeirs af sólóplötum hans og lög hans af plötum sem hann hefur gert í samstarfi við aðra listamenn. Árið 2006 kom út fyrsta sólóplata Ásgeirs, Passing through en á henni léku meðal annars þeir Chris Cheek og Matt Penman, árið 2015 kom út platan Tríó þar sem fjölmargir íslenskir

listamenn komu að og síðan verða leikin lög af íslenska þjóðlagaþríleiknum í nýjum útsetningum sem og lög af plötu sem Ásgeir gerði samstarfi við söngkonuna Rebekku Blöndal.

Ásgeir hyggst ráðast í stóra útgáfu á þessu ári en hann gaf út 4ra laga EP plötuna Emotions í byrjun febrúar og 4ra laga Ep plötuna People and places 30. apríl og munu ný lög hljóma þetta kvöld í bland við lög af fyrrnefndum plötum.

Ásgeir Ásgeirsson hefur verið einn eftirsóttasti gítarleikari þjóðarinnar undanfarin 30 ár og margar hljómsveitir, samstarfsverkefni og sólóplötur hans notið mikillar hylli og fengið frábæra dóma á Íslandi og erlendis.

Kvartett Ásgeirs skipa þeir.

  • Ásgeir Ásgeirsson gítar

  • Kjartan Valdemarsson píanó

  • Birgir Steinn Theodórsson bassi

  • Magnús Trygvason Eliassen trommur

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger