© 2025 Tix Miðasala
Hlégarður
•
23. október
Sala hefst
15. maí 2025, 15:00
(eftir 1 dag)
Bjarni Ómar fagnar útgáfu fjórðu breiðskífu sinnar Athvarf
Bjarni hefur gefið út yfir tvo tugi laga sem komið hafa út á á fyrstu mánuðum þessa árs en auk þess gaf hann út sína blúsuðu útgáfu af lagi Bubba Morthens Stál og Hníf í upphafi árs 2024. Bjarni tók þátt í sýningu Borgarleikhússins NÍu Líf sem Alþýðububbi en auk þess kemur hann reglulega fram við ýmis tækifæri sem trúbador og með hljómsveitunum Nostal, Góðum í hófi og Kokkteil.
Bjarni hefur gefið út fimm LP sólóplötur og nokkrar smáskífur sem fengið hafa verðskuldaða athygli enda um vandaðar laga- og textasmíðar að ræða. Textar við lög Bjarna eru afar opinskáir og tilfinningaríkir og ekkert er dregið undan með persónulegri nálgun bæði í hans eigin textum sem og meðhöfunda.
Platan Athvarf markar nýjan kafla í tónlistarferli Bjarna ekki síst vegna þess að platan kom út í tveimur útgáfum upphaflega með íslenskum textum í janúar en í mars kom hún svo út með enskum textum undir heitinu Draw me ásamt einu aukalagi. Á tónleikunum verður flutt efni af nýju plötunum í bland við eldri lög af fyrri sólóplötum og nýlegum smáskífum.
Þetta kvöld verður fullt af skemmtilegheitum við bestu aðstæður í félagsheimili Mosfellinga Hlégarði.
Sjáumst 23. október í Hlégarði Mosfellsbæ.
Tónleikarnir hefjast kl 20:00, húsið opnar klst áður.
Eftirfarandi listamenn munu flytja lögin með glæsibrag:
Gestasöngvari - María Mjöll Guðmundsdóttir
Ágúst Leósson - Rafgítar
Daníel Birgir Bjarnason – Slagverk
Jón Karl Ólafsson - Hammondorgel, strengir
Níels Ragnarsson - Rafpíanó, Píanó og brass
Ragnar Z Guðjónsson – Trommur
Svavar H Viðarsson - Bassagítar
Þröstur Leósson – Rafgítar
Bakraddir - Aðalbjörg Ellertsdóttir og Guðrún Kristín Huldudóttir
Einnig koma fram meðlimir hljómsveitarinnar Góðum í hófi þeir:
Albert Pálsson - Hammondorgel, Píanó
Ásgrímur Guðmundsson – Sólógítar
Guðmundur Stefánsson – Trommur
Kristinn I Sigurjónsson – Bassagítar
Þórhallur Andrésson - Ryþmagítar