Ávaxtakarfan

Harpa

1. - 15. júní

Miðaverð frá

5.900 kr.

Ávaxtakarfan er eitt vinsælasta íslenska barnaleikrit allra tíma.

Eftir að hafa verið sýnt fyrir fullu húsi í Hörpu á vormánuðum 2022 og aftur síðastliðið haust tilkynnum við að Ávaxtakarfan snýr aftur 31.maí

Sýningin hefur hlotið einróma lof sýningargesta og virðast aldnir jafnt sem ungir skemmta sér afar vel.

Leikarahópinn skipar einvala lið og er óhætt að segja að þar sé að finna marga af efnilegustu leikurum þjóðarinnar.

Gói leikstýrir hópnum styrkri hendi, Þorvaldur Bjarni sér um tónlistina eins og áður og Chantelle Carey sér um dansa og sviðshreyfingar.

Höfundur handrits er Kikka K. M. Sigurðardóttir.

Listrænir stjórnendur:

Leikstjórn: Gói Karlsson

Höfundur tónlistar og tónlistarstjóri: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson

Leikmynda- og búningahönnuðir: Eva Signý Berger og Alexía Rós Gylfadóttir

Leikmyndasmiður: Svanhvít Thea Árnadóttir

Ljósahönnuður: Freyr Vilhjálmsson

Danshöfundur: Chantelle Carey

Leikgervi: Margrét R Jónasar

Framleiðandi: Þorsteinn Stephensen

Chantelle Carey danshöfundur::"Í vinnu minni með ungum dönsurum og listamönnum hef ég veitt því athygli hve miklar mætur þau hafa öll á ávaxtakörfunni þannig að ég er ótrúlega spennt fyrir að taka þátt í þessari uppfærslu með frábæru hæfileikafólki."

Kikka K. M. Sigurðardóttir, höfundur Ávaxtakörfunnar: "Mér finnst frábært að nýtt fólk sé að setja Ávaxtakörfuna á svið en ekki ég og listrænir stjórnendur sem ég vinn venjulega með. Ég hef venjulega verið framleiðandi líka en er það ekki núna og er mjög spennt að sjá útkomuna".

Sýningin er um 120 mínútur að lengd með einu hléi

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger