© 2025 Tix Miðasala
Harpa
•
18. - 19. október
Miðaverð frá
4.792 kr.
GRAND KYIV BALLET kynnir: Svanavatnið
Einn þekktasti ballett sögunnar – Svanavatnið eftir Pjotr Ílítj Tsjajkovskíj – lifnar við á sviðinu í túlkun dansara GRAND KYIV BALLET.
Sagan segir frá prinsi sem verður ástfanginn af dularfullri svanaprinsessu sem hefur verið sætt álögum. Þema verksins – ást, fórn og lausn – hefur snert hjörtu áhorfenda um allan heim í meira en öld og gert Svanavatnið að tímalausri klassík sem á erindi við alla.
Áhorfendur geta átt von á tignarlegri klassískri hreyfingu, sterkri tilfinningatúlkun, glæsilegum búningum og heillandi tónlist sem skapa töfrandi andrúmsloft.
Ballettinn er fluttur af úrvals dönsurum GRAND KYIV BALLET – atvinnudansurum frá Úkraínu, Bandaríkjunum, Japan, Spáni og Ítalíu –með víðtæka alþjóðlega reynslu og viðurkenningu.
Þessi sýning er ógleymanleg upplifun fyrir alla fjölskylduna.
20% afsláttur fyrir börn yngri en 12 ára.