Konur sem breyttu leiknum

The Reykjavík Edition

24. september

Sala hefst

20. maí 2025, 10:00

(eftir 2 vikur)

Ráðstefna þar sem konur sem breytt hafa leiknum með einum eða öðrum hætti á sínu sviði koma fram og deila reynslu sinni. Komdu og finndu kraftinn innra með þér, fáðu ný verkfæri í kistuna þína, innblástur til þess að elta draumana og hugrekki til þess að taka næstu skref í eigin vegferð.

Miðvikudaginn 24. september næstkomandi bjóðum við til glæsilegrar ráðstefnu á Hótel Edition í Reykjavík sem ber yfirskriftina Konur sem breyttu leiknum.

Á þessari einstöku ráðstefnu færðu tækifæri til að heyra frá áhrifamiklum konum sem hafa mótað íslenskt samfélag, vakið athygli fyrir störf sín bæði hér og erlendis, veitt innblástur, rutt brautina og breytt leiknum á einn eða annan hátt. Konum sem hafa staðið í eldlínunni, stigið fram þegar á hefur reynt og mótað samfélagið okkar.

Fyrirlesarar ráðstefnunnar koma úr fjölbreyttum hópum atvinnulífsins; viðskiptum, menningu, stjórnmálum, vísindum og tækni og listum sem dæmi– og munu deila reynslu sinni, áskorunum sem þær hafa yfirstigið, gefa góð ráð og opna dyr að sínum leiðum til árangurs.

Þetta er ekki aðeins tækifæri til að hlusta á framúrskarandi konur sem hafa haft áhrif heldur líka til að öðlast dýpri skilning á því hvernig leiðtogar og brautryðjendur móta heiminn í kringum okkur.

Konur sem breyttu leiknum er ráðstefna þar sem við heiðrum kraft kvenna, áhrifum þeirra og óstöðvandi afl. Þetta eru konurnar sem breyttu leiknum og nú er komið að þér.

Dagskrá:

8:30 Húsið opnar / Morgunverður í boði

9:00 -12:00 Fyrirlestrar

12:00-13:00 Hádegishlé

13:00-15:00 Fyrirlesarar

15:00 Kokteilboð og tengslamyndun

Morgunverður, kaffi, te og gos í boði yfir daginn

Hverjar koma fram?

Guðríður Gunnlaugsdóttir

Stofnandi og eigandi Barnaloppunnar

Guðríður fjallar um hlutverk Loppunnar til að efla samfélagslega ábyrgð og

breyta neyslumynstri Íslendinga. Hún ræðir um mikilvægi endurnýtingar, hvernig

fyrirtækið stuðlar að hugarfarsbreytingu í átt að sjálfbærari framtíð og hvernig við getum

öll lagt okkar af mörkum í gegnum meðvitaðari neyslu. Með líflegu erindi og dæmum úr

eigin reynslu veitir Guðríður innblástur um hvernig frumkvöðlastarf getur haft

raunveruleg samfélagsleg áhrif

Elín Elísabet Torfadóttir

Þróunarstýra hjá Spotify. Líffræðingur og tölvunarfræðingur

Elín mun fjalla um hvernig leiðtogahæfileikar mótast þegar starfsferillinn liggur

frá Íslandi, yfir til Indlands og að lokum í hjarta tækninar í Stokkhólmi. Á síðustu sjö

árum sem þróunarstýra hjá Spotify hefur hún upplifað örar breytingar, óvænt tækifæri og

áskoranir sem hafa krafist bæði áræðni og aðlögunarhæfni – og stundum, smá heppni.

Hvaða eiginleikar skipta mestu máli fyrir konur sem vilja vaxa og leiða í síbreytilegu

umhverfi?

Helga Braga Jónsdóttir

Leikkona, skemmtikraftur og flugfreyja

Helga Braga Jónsdóttir leikkona flytur kraftmikla og skemmtilega hugvekju með

sinni einstöku nærveru, húmor og innsæi.

Hulda Kr. Guðmundsdóttir

Framkvæmdarstjóri dk hugbúnaðar / Stjórnandi hjá Total Specific Solutions

/Alþjóðamarkaðsfræðingur / markþjálfi

Ert þú breytingin sem þú bíður eftir? Ég mun fjalla um hvernig raunveruleg áhrif

byrja innan frá, að stíga fram, skapa tækifæri og vera hvati breytinga þvert á landamæri,

sérstaklega þegar við förum ótroðnar slóðir.

Guðný Debora Jóhannsdóttir Framkvæmdastjóri og stofnandi Blam ApS og

Guðrún Olsen Senior Manager í stefnumótun hjá Tryg Forsikring A/S. Báðar

stjórnarkonur hjá Kötlu Nordic félags íslenskra kvenna í atvinnulífinu á

Norðurlöndunum

Guðný og Guðrún eru búsettar í Kaupmannahöfn og sitja í stjórn KÖTLU Nordic,

félags íslenskra kvenna í atvinnulífinu á Norðurlöndunum. Guðný og Guðrún munu

segja frá KÖTLU Nordic og hvernig félagið hefur aukið sýnileika félagskvenna og haft

áhrif á jafnrétti, ásamt því hvernig það er að vinna og/eða stunda nám sem Íslendingur á

Norðurlöndunum.

Nína Dögg Filippusdóttir

Leikkona – Vesturport

Frelsið að hugsa út fyrir boxið, tækifæri og hindranir

Sesselía Birgisdóttir

Stjórnandi hjá Högum

Sesselía Birgisdóttir mun fjalla um hvernig hægt er að nýta vörumerkjafræðin til

uppbyggingar á persónulegum starfsframa. Í erindinu fjallar hún um hvaða þættir við

persónulega vörumerkjauppbyggingu vega þyngst og kynnir einfalda aðferðafræði sem

að allir geta nýtt sér. Einnig deilir Sesselía persónulegum reynslusögum úr sinni vegferð

og hvernig stefnumarkandi vörumerkjauppbygging hafði áhrif á hennar starfsframa.

Sesselía hefur mikla reynslu bæði hérlendis og erlendis sem stjórnandi og hefur starfað

við uppbyggingu og umbreytingu á vörumerkjum og sölu- og þjónustuleiðum fjölda

stórra innlendra fyrirtækja.

Tilkynnt verður um fleiri fyrirlesara á næstu dögum.

Ráðstefnustjóri er Kolbrún Pálína Helgadóttir, fyrrum fjölmiðlakona, markaðssérfræðingur og markþjálfi.

Af hverju ættir þú að mæta?

Því þú ert hluti af þeirri kynslóð kvenna sem breytti leiknum.

Því draumar þínir og markmið skipta máli – og þú hefur alla burði til að gera þá að veruleika.

Hvort sem þú ert frumkvöðull, stjórnandi, nemi, listakona, íþróttakona, kennari eða bara kona með metnað og stórar hugmyndir – þá er þessi ráðstefna fyrir þig.

Dagurinn verður fullur af innblæstri, reynslusögum, hagnýtum ráðum,

kraftmiklum samræðum og tækifærum til að tengjast öðrum konum sem eins og þú geta haft áhrif og breytt leiknum.

Vertu með okkur. Vertu krafturinn sem breytir.

Við hlökkum til að sjá þig 24. september á Hótel Edition.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger