Mahler 8 - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

29. - 30. maí

Sala hefst

11. júní 2025, 10:00

(eftir 4 daga)

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen

Einsöngvarar:

Bryndís Guðjónsdóttir

Álfheidur Erla Guðmundsdóttir

Dísella Lárusdóttir

Anna Kissjudit

Hanna Dóra Sturludóttir

Simon O'Neill

Ólafur Kjartan Sigurðarson

Tómas Tómasson

Kórar:

Mótettukórinn

Hljómeyki

Söngsveitin Fílharmónía

Kór Langholtskirkju

Skólakór Kársness

Kórstjórar:

Stefan Sand

Magnús Ragnarsson

Álfheidur Björgvinndóttir

Efnisskrá:  

Gustav Mahler Sinfónía nr. 8

Flutningur á 8. sinfóníu Mahlers er án nokkurs vafa stórviðburður í íslensku tónlistarlífi og markar tímamót í sögu Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Þetta stórvirki tónlistarsögunnar hefur aldrei áður verið flutt hér á landi og nú er öllu tjaldað til.

Sinfónían hlaut snemma viðurnefnið sinfónía þúsundanna þar sem flutningur hennar kallar á óvenjulegan fjölda flytjenda, jafnt söngvara sem hljóðfæraleikara. Á sviðinu verða á fjórða hundrað flytjendur, óvenjustór hljómsveit, átta einsöngvarar, kór og barnakór. Mahler samdi þetta áhrifaríka tónverk á aðeins sex vikum árið 1906, sem risavaxinn fagnaðaróð til kærleikans og mennskunnar, fullan bjartsýni og trúar á mannkynið. Mahler var sannfærður um að skilaboð verksins ættu erindi við heimsbyggðina og enn í dag er flutningur verksins í raun alþjóðlegur tónlistarviðburður í hvert sinn.

Þessir tónleikar verða einnig kveðjustund Evu Ollikainen sem aðalstjórnanda, en hún hefur verið aðalstjórnandi og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2020.

Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger