© 2025 Tix Miðasala
Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
12. mars
Sala hefst
11. júní 2025, 10:00
(eftir 4 daga)
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen
Einleikari: Kian Soltani
Efnisskrá:
Jean Sibelius Dóttir norðursins
Witold Lutoslawski Sellókonsert
Jean Sibelius Sinfónía nr. 2
Staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sellóleikarinn Kian Soltani, þykir einn athyglisverðasti sellóleikari sinnar kynslóðar. Hann er margverðlaunaður, síðast hinum þýsku Opus Klassik verðlaunum. Soltani, ásamt Evu Ollikainen aðalhljómsveitarstjóra, kynnir hér tónleikadagskrá væntanlegrar Evrópureisu hljómsveitarinnar. Þar leikur tónlist finnska tónskáldsins Jean Sibelius stórt hlutverk. Dóttir norðursins sækir innblástur sinn í Kalevala ljóðabálkinn og segir í verkinu frá samskiptum hins göldrótta öldungs Väinämöinen við dóttur norðursins. Önnur sinfónía Sibeliusar er ein vinsælasta sinfónía hans. Viðtökurnar voru einstakar og gagnrýnendur kepptust við að ausa sinfóníuna lofi: Algert meistaraverk! Tónlistarunnendur hafa alla tíð eftir frumflutninginn verið sammála um að það hafi verið rétt mat.
Annað meistaraverk, en öllu yngra, er sellókonsert Lutoslawskis frá árinu 1970. Allt frá frumflutningi sellósnillingsins Mstislavs Rostropovitsj hefur konsertinn notið fádæma vinsælda. Konsertinn er hlaðinn orku, ljóðrænu og mikilli dramatík og var valinn einn af tíu bestu sellókonsertum tónlistarsögunnar af gagnrýnendum BBC tónlistartímaritsins haustið 2024.