Beethoven & Shostakovitsj - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

15. janúar

Sala hefst

11. júní 2025, 10:00

(eftir 4 daga)

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri: Bjarni Frímann Bjarnason

Einleikari: Clara-Jumi Kang

Efnisskrá:

Ludwig Van Beethoven Fiðlukonsert

Dmítríj Shostakovitsj Sinfónía nr. 5

Tvö stórvirki tónlistarsögunnar eru viðfangsefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands á þessum tónleikum. Viðtökurnar við þeim á sínum tíma voru engu að síður afar misjafnar. Það verður nefnilega seint sagt að fiðlukonsert Beethovens hafi slegið í gegn þegar hann var frumfluttur á köldu desemberkvöldi í Vínarborg árið 1806. Konsertinum var mætt af miklu fálæti og féll hann fljótt í gleymsku. Það var svo tæpum 40 árum síðar að hinn 12 ára gamli Joseph Joachim flutti konsertinn í London undir stjórn Felix Mendelssohns. Þá loks var heimurinn tilbúinn að meðtaka þennan mikilfenglega sinfóníska fiðlukonsert og hefur hann alla tíð síðan verið fastagestur á tónleikadagskrám hljómsveita og fiðluleikara um heim allan.

Fimmtu sinfóníu Shostakovitsj var á hinn bóginn tekið fagnandi með standandi lófataki við frumflutninginn árið 1937. Almenningur fagnaði og það sem meira var, pólítisk yfirvöld í Sovétríkjunum gerðu það einnig. Það þykir þó næsta víst að túlkun þeirra á verkinu hafi ekki verið sú sama. Yfirvöld heyrðu „heiðarlegt svar sovésks listamanns við réttmætri gagnrýni“ líkt og þekkt tilvitnun segir, á meðan almenningur upplifði verkið sem áhrifamikla lýsingu á kúgun Stalínstímans. Sinfónían hefur engu að síður verið sú sinfónía Shostakovitsj sem flutt er hvað oftast og lætur engan ósnortinn.

Kóresk-þýski fiðluleikarinn Clara-Jumi Kang nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar fyrir tónlistarhæfileika sína og tæknilega færni. Á ferli sínum hefur hún hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Upptaka hennar ásamt píanóleikaranum Sunwook Kim á öllum fiðlusónötum Beethovens, sem út kom hjá Accentus árið 2021, hefur fengið afar góða dóma og tilnefningar. Hljómsveitarstjórinn, Bjarni Frímann Bjarnason, hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands margoft við góðan orðstír.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger