© 2025 Tix Miðasala
Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
30. október
Sala hefst
11. júní 2025, 10:00
(eftir 4 daga)
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen
Einleikari: Noah Bendix-Balgley
Efnisskrá
Wolfgang Amadeus Mozart Fiðlukonsert nr. 5
Anton Bruckner Sinfónía nr. 7
Á þessum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands stjórnar Eva Ollikainen verkum eftir Mozart og Bruckner. Fimmti og síðasti fiðlukonsert W. A. Mozarts var frumfluttur á tónleikum í Salzburg í desember fyrir 250 árum og þar var 19 ára tónskáldið sjálft í hlutverki einleikarans. Konsertinn er viðamestur allra fiðlukonserta Mozarts, leiftrar af hugmyndaauðgi og leikgleði og óvæntar hraða- og taktbreytingar teygja konsertformið inn á nýjar brautir. Hinn bandaríski Noah Bendix-Balgley er 1. konsertmeistari Fílharmóníusveitarinnar í Berlín, en kemur einnig reglulega fram sem einleikari með mörgum af fremstu hljómsveitum heims.
Sjöunda sinfónía Antons Bruckner er ein þekktasta sinfónía tónskáldsins og er talin meðal hornsteina síðrómantískrar sinfóníugerðar. Viðtökurnar á sinfóníunni mörkuðu þáttaskil á ferli Bruckners og skipuðu honum í fremstu röð sinfónískra tónskálda á 19.öld. Richard Wagner, sem var mikil fyrirmynd Bruckners, lést skömmu áður en smíði sinfóníunnar lauk og telja margir að virðing Bruckners fyrir óperutónskáldinu birtist með ýmsum hætti í sinfóníunni.