Daníel og Eric Lu - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

25. september

Sala hefst

11. júní 2025, 10:00

(eftir 4 daga)

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri: Daníel Bjarnason

Einsöngvari: Eric Lu

Efnisskrá

Hildur Guðnadóttir For Petra I úr Tár

Pjotr Tsjajkovskíj Píanókonsert nr. 1

Daníel Bjarnason I Want To Be Alive - þríleikur fyrir hljómsveit - frumflutningur

Stórar spurningar um mennsku, vitund og samspil tækni og goðsagna liggja til grundvallar hljómsveitarverkinu I Want To Be Alive (Ég vil vera lifandi) eftir Daníel Bjarnason sem verður Íslandsfrumflutt á þessum tónleikunum Sinfónuhljómsveitar Íslands. Frumgerð upphafskaflans var flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2023 en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og Daníel endurskoðað kaflann frá grunni og bætt við tveimur nýjum þáttum.

Á tónleikunum leikur bandaríski píanóleikarinn Eric Lu einn þekktasta og vinsælasta píanókonsert allra tíma, hinn kraftmikla og tilfinningaríka konsert nr. 1 eftir Pjotr Tsjajkovskíj. Ferill þessa góða gests hefur verið einkar glæsilegur frá því að hann sigraði í hinni virtu Leeds píanókeppni árið 2018. Lu hefur leikið með mörgum af þekktustu hljómsveitum heims undir stjórn heimskunnra hljómsveitarstjóra og hvarvetna hlotið viðurkenningu og lof.

Kvikmyndin Tár, sem fjallar um raunir hljómsveitarstjórans Lydiu Tár, vakti mikla athygli árið 2022. Myndin skartaði vel þekktri sígildri tónlist og seiðandi kvikmyndatónlist Hildar Guðnadóttur, þar á meðal er hið kyrrláta og fallega verk For Petra I. Flutningurinn er góð upphitun fyrir aðra tónleika með verkum Hildar síðar á starfsárinu.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger