Anna og Strauss - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

4. september

Sala hefst

11. júní 2025, 10:00

(eftir 4 daga)

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen

Einleikari: Johannes Moser

Efnisskrá:

Richard Strauss Þættir Úr Ballettinum Schlagobers

Anna Þorvaldsdóttir Before We Fall (Sellókonsert) – Íslandsfrumflutningur

Richard Strauss Svíta Úr Elektra (Úts. Manfred Honeck Og Thomas Ille)

Eva Ollikainen er hljómsveitarstjóri á þessum spennandi tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í upphafi vetrar. Frumflutningur á nýjum sellókonserti eftir Önnu Þorvaldsdóttur telst stórviðburður í heimi samtímatónlistarinnar. Anna er eitt eftirsóttasta tónskáld dagsins í dag og verk hennar eru flutt reglulega af fremstu hljómsveitum heims. Sellóleikarinn Johannes Moser frumflytur verkið með Sinfóníuhljómsveit San Francisco og kemur í kjölfarið til Íslands. Moser er margverðlaunaður fyrir list sína og hefur komið fram sem einleikari með öllum helstu sinfóníuhljómsveitum austan hafs og vestan.

Skrif Richards Strauss fyrir hljómsveit eru einkar litrík og metnaðarfull. Fá tónskáld eru honum fremri í að nýta sér möguleikana sem búa í hljóðheimi sinfóníuhljómsveitar. Elektra er ein af þekktustu óperum Strauss og í þessari hljómsveitarsvítu úr verkinu birtist vel sá frumkraftur og dramatíska spenna sem upplifa má í sjálfri óperunni. Enn fremur hljómar í upphafi tónleikanna tónlist úr eina balletti Richards Strauss sem ber það óvenjulega heiti Schlagobers, eða „Þeyttur rjómi“. Efniviðurinn er heimsókn nokkurra barna í kræsilegt bakarí í Vínarborg þar sem sætabrauð og kökur vakna til lífsins – og þetta má greina í safaríkri tónlistinni.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger