© 2025 Tix Miðasala
Hof
•
25. maí
Miðaverð frá
3.900 kr.
Á þessum hugljúfu og heillandi tónleikum fléttast saman sígild sönglög frá ólíkum tímum og lög úr leikhúsi og kvikmyndum í túlkun Ragnheiðar Ingunnar Jóhannsdóttur, sópransöngkonu og Evu Þyri Hilmarsdóttur, píanóleikara.
Öll verkin á dagskránni eiga það sammerkt að hverfast um drauma og þrár. Á tónleikunum verða flutt þrjú verk sem samin voru fyrr á árinu að beiðni Ragnheiðar og Evu Þyri af þeim Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur, Jóhanni G. Jóhannssyni og Sigurði Sævarssyni. Eldri íslensk einsöngslög fá að sjálfsögðu líka sinn sess, meðal annars verða flutt lög eftir Sigvalda og Selmu Kaldalóns, Jórunni Viðar og Sigfús Einarsson, auk sönglaga eftir tónskáld á borð við Grieg, Sibelius, Rachmaninov og Schubert. Þá leikur Eva Þyri tvö einleiksverk fyrir píanó; Träumerei eftir Robert Schumann og Liebestraum eftir Franz Liszt. Þær Ragnheiður Ingunn og Eva Þyri fagna 10 ára samstarfsafmæli um þessar mundir, en leiðir þeirra lágu fyrst saman árið 2015 í Tónlistarskólanum í Reykjavík þar sem Ragnheiður var þá nemandi en Eva Þyri meðleikari. Samstarfið færðist yfir í Listaháskóla Íslands, en allar götur síðan hafa þær verið með eitthvað spennandi á prjónunum og flutt heilmikið af metnaðarfullri tónlist fyrir sópran og píanó. Þær hafa m.a. komið fram sem dúó á Sumartónleikum í Sigurjónssafni, Tónlistarnæringu í Garðabæ, Óperudögum, Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni og nú síðast í Salnum í Kópavogi í tónleikaröðinni Tíbrá.