© 2025 Tix Miðasala
Hannesarholt
•
16. maí
Miðaverð frá
4.900 kr.
Eldmóðir – Lokatónleikar vetrarins með Cauda Collective í Hannesarholti
Cauda Collective lýkur tónleikaröð sinni Eldblik í Hannesarholti með kraftmikilli tónlistarupplifun undir heitinu Eldmóðir föstudaginn 16 maí kl. 20:00.
Á efnisskránni eru fjögur áhrifamikil verk sem öll fjalla um móðurhlutverkið í ýmsum myndum. Verk tónleikanna fjalla um missi og átök, söknuð, ást og nærveru – allt frá nýfæddu barni á móðurbrjósti, til þunguðu konunnar sem stendur frammi fyrir sársaukafullum sannleika.
Efnisskrá kvöldsins:
Sóley Stefánsdóttir: Parasite – fyrir sópran og víólu
Sveinn Lúðvík Björnsson: ...og í augunum blik minninganna – strengjakvartett samin í minningu Margrétar Halldóru Hallgrímsdóttur móður höfundar
Þuríður Jónsdóttir: INNI – hljóðheimur mótaður af upptökum af nýbura að næra sig
Arnold Schönberg: Verklärte Nacht – dramatískur strengjasextett eftir ljóð um ást, sekt og fyrirgefningu
Eldmóðir er óður til móðurinnar – til þeirra tengsla sem krefjast bæði hugrekkis og hlýju. Hjartanlega velkomin í Hannesarholt.