© 2025 Tix Miðasala
Hjallakirkja
•
12. maí
Miðaverð frá
4.000 kr.
Vortónleikar Samkórs Kópavogs.
Þema tónleikanna er tónlist eftir norræn tónskáld og víða verður komið við í fjölbreyttri efnisskrá en þar koma m.a. við sögu tónskáldin Jóhann G. Jóhannsson, Tómas R. Einarsson og Hjálmar H. Ragnarsson. Sænska ABBA tónskáldið Benny Andersson fær sinn sess sem og m.a. norsku tónskáldin Ola Gjeilo og Henning Sommerro
Guðrún Gunnarsdóttir söngkona og Gunnar Gunnarsson píanóleikari verða gestir og munu flytja þekktar norrænar söngperlur.
Stjórnandi kórsins er Lenka Mátéová og píanóleikari er Peter Máté.
Verið innilega velkomin að finna ilminn að vorinu með okkur á mánudagskvöldi í maí.