Messa eftir Auði Guðjohnsen

Hafnarfjarðarkirkja

2. júní

Miðaverð frá

4.500 kr.

Barbörukórinn frumflytur messu eftir Auði Guðjohnsen í Hafnarfjarðarkirkju 2. júní kl. 20:00. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Messan er flutt í blönduðum kór án undirleiks.

Markmið þessarar tónsmíðar er að auka áhuga á íslenskri kórtónlist

með því að höfða til breiðari hóps fólks með aðgengilegu en jafnframt áhrifaríku tónmáli. Tilgangurinn er ekki síður sá, að endurvekja eitt þekktasta form kirkjutónlistarinnar og glæða textana nýju lífi.

Norræn kórtónlist vekur sífellt meiri áhuga erlendra kórstjóra og unnenda kórtónlistar í heiminum og þar er íslensk tónlist að engu undanskilin. Það er hlutverk íslenskra tónskálda að bæta sífellt við flóru kórtónlistar á Íslandi, ekki síst á sviði kirkjutónlistar til að efla starf kirkjunnar, vegsemd hennar og virðingu.

Verkefnið hefur hlotið styrk úr Tónskáldasjóði RÚV og Stefs, Tónlistarsjóði Kirkjunnar og Stefs, Menningarsjóði FÍH og Sjóði Friðriks Bjarnasonar og Guðlaugar Pétursdóttur. Einnig verður sótt um styrk úr nótnasjóði Stefs í apríl nk. til stuðnings við útgáfu messunnar í bók auk þess sem kórinn stefnir á hljóðritun hennar í nánustu framtíð.

Barbörukórinn er kammerkór, stofnaður vorið 2007 af Guðmundi Sigurðssyni, organista Hafnarfjarðarkirkju, og nokkrum söngvurum. Kórinn er skipaður 16 atvinnusöngvurum og er þekktur fyrir afar tæran söng og fagmannlega framkomu. Hann kennir sig við heilaga Barböru en stytta af dýrlingnum fannst árið 1950 við uppgröft í fornri kapellu í Kapelluhrauni í Hafnarfirði. Kórinn kemur reglulega fram við helgihald Hafnarfjarðarkirkju auk tónleikahalds og söngs við útfarir þar og víðar.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger