Drengjakór íslenska lýðveldisins - Ólýsanlegir

FÍ salurinn

9. maí

Miðaverð frá

5.500 kr.

Það verður vor í lofti þegar sprelligosarnir í Drengjakór íslenska lýðveldisins halda sína árlegu vorskemmtun!

Þessir óþreytandi fjörkálfar - sem sumir vilja kalla fjöllistahóp – munu þá syngja, segja, sýna og sprella allt í senn, allt í fullkomnu og þrælskipulögðu skipulagsleysi og óðagoti. en það eru einmitt einkennisorð kórsins.

Komdu og fagnaðu vetrarlokum með Drengjunum sem eru jafnvel meira vor en vorið sjálft. Það verður sungið, sprellað, hlegið og kannski líka klappað – helst í takt en það er ekki skilyrði.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger