Lög Leonard Cohen

Margar staðsetningar

4 viðburðir

Miðaverð frá

3.990 kr.

Daníel Hjálmtýsson flytur lög Leonard Cohen í Hvalsneskirkju, Akraneskirkju og í Djúpinu í Reykjavík dagana 29. maí til 1. júní nk. .

Uppselt hefur verið á flesta slíka tónleika Daníels frá árinu 2016 en þetta munu vera fyrstu tónleikar Daníels á Akranesi.

Daníel hefur undanfarinn áratug fyllt kirkjur og krár víðsvegar um land og flutt efni Cohen í ýmsum formum og gerðum en Daníel er nýlentur heima á Íslandi eftir tónleikaferðalag um Bretlandseyjar ásamt hinum breska Duke Garwood.

Þá undirbýr Daníel útgáfu sinnar annarrar breiðskífu, sem væntanleg er síðar á þessu ári en söngvarinn hefur getið sér gott orð bæði hér heima og erlendis fyrir magnþrunginn og tilfinningalegan flutning á sinni tónlist.

Túlkun Daníels á lögum og textum Leonard Cohen hefur vakið mikla eftirtekt og lof gesta.

Miðasala hefst á Tix.is mánudaginn 14. apríl klukkan 10.00

Allir tónleikar hefjast stundvíslega kl. 20.00

**Sérstakir gestir kynntir síðar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger