© 2025 Tix Miðasala
Bíó Paradís
•
5. apríl
Miðaverð frá
3.500 kr.
Sigurvegarar Stuttmyndakeppni Kvikmyndahátíðar framhaldsskólanna (KHF) sýna myndir sínar og boðið verður upp á umræður eftir sýningarnar.
Draumar – Roman Ægir Fjölnisson
13 mín
Mikael er ungur maður sem lendir í slysi og byrjar að dreyma undarlega drauma…
Kvöldmatur – Sindri Þrastarson
8 mín
Drengur fer í matarboð hjá foreldrum kærustu sinnar. Hann vill heilla tengdaforeldrana en það fer úrskeiðis.
Sápa – Ísak Magnússon
8 mín
Ungur maður er svangur. Í örvæntingu leitar hann að sápu sem matarlausn. Sápan hefur áhrif á líf mannsins.
Sæmundur fróði og Svartiskóli – Jökull Björgvinsson
2 mín
Fjallar um Sæmund Fróða í Svartaskóla og hvernig hann nær að flýja þaðan úr greipum Kölska