Borgarleikhúsið

1. - 7. maí

Miðaverð frá

5.900 kr.

Söngleikurinn Shrek

Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz frumsýnir í ár hinn stórskemmtilega og sívinsæla söngleik Shrek á nýja sviði Borgarleikhússins. Hér er á ferðinni skemmtun fyrir alla aldurshópa með grípandi lögum, sprellfjörugu gríni og kraftmiklum dönsum.

Fyrir þau ykkar sem þekkið teiknimyndina er hér á ferðinni stórskemmtilegur Broadway-söngleikur með óteljandi hressum og fallegum lögum með Shrek, Asna, Fíónu prinsessu, vonda kallinum Farquaad og öllum hinum undraverunum; grín og gaman fyrir alla fjölskylduna!

Komið í Borgarleikhúsið og njótið ævintýrisins með okkur!

Höfundar:

Tónlist eftir Jeanine Tesori

Söngtextar og handrit eftir David Lindsay-Abaire

Listrænt teymi:

Leikstjóri: Orri Huginn Ágústsson

Tónlistarstjórn: Ingvar Alfreðsson, Agnar Már Magnússon (aðstoð við tónlistarstjórn)

Danshöfundar: Gabriel Marling Rideout, Rebecca Hidalgo (steppdans)

Leikgervi: Elín Hanna Ríkarðsdóttir (hönnun og yfirumsjón), Auður Svavarsdóttir (förðun, hugmyndavinna við hönnun)

Stjórnandi deildarinnar: Þór Breiðfjörð

Kennarar: Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir

Þýðing: Orri Huginn Ágústsson og Þór Breiðfjörð. Byggt á eldri þýðingu Agnesar Wild.

Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz er sú elsta sinnar tegundar á Íslandi og hefur í rúman áratug komið á fót öflugri menntun fyrir upprennandi söngleikjastjörnur. Nemendur hafa komist inn í virtustu háskóla í leiklist og söngleikjum bæði hér heima og erlendis, þar á meðal í Leiklistardeild, sviðshöfundadeild og skapandi miðlunardeild LHÍ. Skólinn hefur styrkt stöðu söngleikjalistar á Íslandi með alhliða sviðsþjálfun og metnaðarfullri söngkennslu.

Söngskóli Sigurðar Demetz byggir á arfleifð Scala-söngvarans Sigga Demm (Vincenso Maria Demetz) frá Suður-Týról, sem kom til Íslands og hafði djúpstæð áhrif á sönglíf og söngkennslu þjóðarinnar. Óperusöngvarar landsins hafa margir hlotið menntun þaðan, og nú heldur skólinn áfram að útskrifa hæfileikaríka listamenn í söngleikja- og tónlistarleikhúsi.

Miðasala er hafin – tryggið ykkur sæti á þessu ævintýri á Tix.is!

Umsóknir í söngleikjadeild og einsöngsdeild fyrir næsta skólaár eru opnar á www.songskoli.is.

Shrek The Musical er sýnt samkvæmt samningi við Music Theatre International (MTI). Öll sýningarleyfi og efni eru í boði í gegnum MTI. www.mtishows.co.uk

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger