© 2025 Tix Miðasala
IÐNÓ
•
26. september
Miðaverð frá
4.990 kr.
Þann 14. mars fyrir 40 árum síðan kom þungarokkshljómsveitin Iron Maiden fram á fyrstu af fjórum tónleikum í Long Beach í Kaliforníuríki Bandaríkjana. Tónleikarnir voru teknir upp fyrir plötuna Live after Death, sem margir telja eina af bestu tónleikaplötum allra tíma og hefur hún svo sannarlega staðist tímans tönn.
Lagalistinn er magnaður og inniheldur marga af stæstu slögurum Iron Maiden, enda voru þeir að fylgja á eftir meistaraverkinu Powerslave sem kom út árið áður. World Slavery Tour tónleikaferðalagið stóð yfir í næstum því heilt ár, spannaði 5 heimsálfur og var í heildina 187 tónleikar. Þetta var eitt umfangsmesta og krefjandi tónleikaferðalag rokksögunnar á sínum tíma.
Af tilefni 40 ára afmælisins mun MaidenIced heiðurshljómsveitin blása til tónleika og flytja öll lög af plötunni í bland við klassíska Maiden slagara. MaidenIced hefur starfað síðan árið 2011. Hún er skipuð reynsluboltum úr íslensku rokksenunni og mikill metnaður er lagður í að gera tónlist Iron Maiden góð skil.
Meðlimir:
Kristján B. Heiðarsson - trommur
Magnús Halldór Pálsson - bassi
Ragnar Ólafsson - söngur
Reynir Baldursson - gítar
Sigurður Waage - gítar
“Scream for me Iceland!” Iðnó 26 September!