Sing-Along með Lúðró

Ráðhús Ölfus

5. apríl

Miðaverð frá

2.900 kr.

Lúðrasveit Þorlákshafnar heldur einhverskonar sumarupphitunartónleika laugardagskvöldið 5. apríl í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss í Þorlákshöfn.

Tónleikarnir bera yfirskriftina Sing-Along með Lúðró enda efnisskráin samsett úr íslenskum smellum, lögum sem tilvalið er að bresta í söng með ef vill og jafn vel dilla sér líka - og verða áhorfendur hvattir til hvoru tveggja!

Um er að ræða pokatónleika þar sem einskonar kaffihúsastemning mun ráða ríkjum og markmiðið að fólk fari kátt út í komandi vor. Stjórnandi er Daði Þór Einarsson.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger