© 2025 Tix Miðasala
Dómkirkjan í Reykjavík
•
5. apríl
Miðaverð frá
3.900 kr.
Sálmaspuni á föstu.
Dómkórinn í Reykjavík og jazzkvartett Sigurðar Flosasonar flytja sálma eftir Sigurð við texta eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og fleiri. Flutt verður sálmasvíta þar sem jazzkvartett kallast á við söng kórsins. Einnig verða nýir sálmar frumfluttir.
Stjórnandi: Lenka Mátéová
Jazzkvartett Sigurðar Flosasonar: Eyþór Gunnarsson, píanó, Birgir Steinn Theódórsson, kontrabassi, Einar Scheving, trommur, Sigurður Flosason saxófónn.
Tónleikagestir eiga von á skemmtilegum tónleikum með kórsöng í bland við jazz og spuna!
Tónleikarnir eru um klukkustund og án hlés.