Hljómsveit Sigmars Matthíassonar ásamt Ragnheiði Gröndal - Múlinn jazzklúbbur

Harpa

21. maí

Miðaverð frá

4.500 kr.

Múlinn jazzklúbbur

Flytjendur

Haukur Gröndal, klarinett

Ásgeir Ásgeirsson, oud

Ingi Bjarni Skúlason, píanó

Sigmar Þór Matthíasson, bassi

Magnús Trygvason Eliassen, trommur

Sérstakir gestir:

Ragnheiður Gröndal, söngur

Strengjakvartettinn LÝRA:

Sigrún Harðardóttir, fiðla

Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, fiðla

Karl James Pestka, víóla

Unnur Jónsdóttir, selló

Um tónleikana

Bassaleikarinn Sigmar Þór Matthíasson gaf út sína þriðju sóló plötu síðastliðið haust. Platan, sem nefnist "Uneven Equator", er einskonar rökrétt en þó sjálfstætt framhald af hans síðustu plötu "Meridian Metaphor", þar sem söngur og strengjahljóðfæri bætast við og stækka þannig hljóðheiminn - nútíma jazz sen blandast við austræna heimstónlist á frumlegan hátt.

Hljómsveit Sigmars hefur komið fram víða um land undanfarin 4 ár og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2022 sem Flytjandi ársins (hópar) í flokki Jazz & Blús tónlistar.

Á tónleikunum mun hljómsveitin flytja plötuna í heild sinni í bland við nokkur lög af fyrri plötum. Að auki er ekki útilokað að glænýtt efni gæti fengið að hljóma.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger