© 2025 Tix Miðasala
Harpa
•
30. apríl
Múlinn jazzklúbbur
Flytjendur
Haukur Gröndal, saxófónn
Ólafur Jónsson, saxófónn
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Þorgrímur Jónsson, bassi
Erik Qvick, trommur
Um tónleikana
Múlakvintettinn fagnar Alþjóðlega jazzdeginum ásamt fjölda tónlistarfólks á tónleikum um heim allan. UNESCO útnefndi þennan tiltekna dag, 30. apríl sem hinn opinbera dag jazzins árið 2011. Mottó dagsins er að jazztónlist getur í sínum mörgu og fjölbreyttu myndum verið tákn sameiningar fyrir fólk af ólíkum uppruna og frá öllum heimshornum sem hlustendur og/eða virkir þátttakendur. Á tónleikum Múlans mun Múlakvintettinn leika fjölbreytt efni af efnisskrám hljómsveitarinnar. Tónlist útsett fyrir tvo saxófóna og rytmasveit þar sem dillandi flæði sveiflunnar ræður ríkjum.