© 2025 Tix Miðasala
Harpa
•
16. apríl
Miðaverð frá
4.500 kr.
Múlinn jazzklúbbur
Flytjendur
Birkir Freyr Matthíasson, trompet
Helga Laufey Finnbogadóttir, píanó
Guðjón Steinar Þorláksson, bassi
Jón Óskar Jónsson, trommur
Um tónleikana
Tríó Helgu Laufeyjar, Jóns Óskars og Guðjóns hefur starfað saman um nokkra hríð og mun á tónleikunum fá til liðs við sig öflugan liðsmann á trompet, Birki Frey Matthíasson.
Efnisskráin er fjölbreytt og má þar heyra lög eftir meistara á borð við Duke Ellington, Cedar Walton, Hoagy Carmichael, Jack DeJohnette og Joe Henderson en einnig nýrri jazz úr smiðju Javier Girotto og Scott Colley. Að auki mun kvartettinn leika af fingrum fram seiðandi afrísk stef, gömul þjóðlög og glænýja frumsamda tónlist.