© 2025 Tix Miðasala
Hallgrímskirkja
•
5. apríl
Laugardagur 5. apríl kl. 12 / Saturday April 5th at 12 hrs.
Björn Steinar Sólbergsson orgel / organ
Aðgangseyrir / Admission ISK 2.900
Björn Steinar flytur orgelverk tengd föstunni eftir Johann Sebastian Bach.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR
Björn Steinar Sólbergsson er organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju í Reykjavík. Hann
kennir jafnframt orgelleik við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands. Björn Steinar stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann á Akranesi og í Tónskóla þjóðkirkjunnar í Reykjavík. Meðal kennara hans þar voru Haukur Guðlaugsson og Fríða Lárusdóttir. Framhaldsnám stundaði hann á Ítalíu hjá James E. Göettsche og í Frakklandi
við Conservatoire National de Region de Rueil Malmaison hjá Susan Landale þar sem hann útskrifaðist með einleikarapróf í orgelleik (Prix de virtuosité) árið 1986. Hann starfaði sem organisti við Akureyrarkirkju í 20 ár þar sem hann vann að uppbyggingu tónlistarstarfs við kirkjuna. Björn Steinar hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima, á öllum norðurlöndunum, í Evrópu og norður-Ameríku. Hann hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Sinfóníuhljómsveit Stavanger og The Cleveland Institute
of Music Orchestra. Hann hefur hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp og á geislaplötur, m.a. öll orgelverk Páls
Ísólfssonar hjá Skálholtsútgáfunni og orgelkonsert Jóns Leifs hjá útgáfufyrirtækinu BIS
sem hlaut einróma lof gagnrýnenda. Björn Steinar hlaut Menningarverðlaun DV 1999, Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2001 og var valinn bæjarlistamaður Akureyrar 2002. Listamannalaun 1999 og 2015.
Í ár kemur Björn Steinar fram á tónleikum á Íslandi, í Danmörku og Þýskalandi.