© 2025 Tix Miðasala
Harpa
•
5 viðburðir
Miðaverð frá
2.200 kr.
Músíktilraunir er tónlistarhátíð sem stendur yfir í 5 daga. Hátíðin á sér yfir 40 ára sögu en fyrstu tilraunirnar fóru fram árið 1982. Ungmenni á aldrinum 13-25 ára geta sótt um þátttöku með því að senda inn umsókn á heimasíðu tilraunanna og greiða þátttökugjald. Undankvöldin eru fjögur þar sem u.þ.b. 40 hljómsveitir keppa að því takmarki að komast áfram á úrslitakvöldið.
Um 10-12 hljómsveitir komast í úrslit og hljóta efstu þrjár sveitirnar glæsileg verðlaun. Efnilegustu hljóðfæraleikararnir eru einnig valdir af dómnefnd en áhorfendur velja vinsælustu hljómsveitina með símakosningu. Undanfarin ár hefur úrslitakvöldinu verið útvarpað um land allt af Rás 2 og árið 2016 hóf Ríkissjónvarpið að streyma úrslitakvöldinu í beinni útsendingu á www.ruv.is.
Músíktilraunirnar veita frábært tækifæri til þess að fylgjast með grasrótinni í íslensku tónlistarlífi og hafa hljómsveitir á borð við Of Monsters and Men, Samaris, Vök, Mínus og Mammút borið sigur úr bítum. Undankvöldin verða 27. mars - 30. mars 2025 kl.19:30 og er miðaverð á hvert undankvöld 2.200 kr.
27. mars
Ann Lemon
Aoife O´Brien
Bíóborg
Bjarki Berg
Daníela Ehman
Dóra & Döðlurnar
j.bear & the cubs
Murder for Profit
Nógu Gott
Spírutual Reflections
Wendigo
28. MARS
5K
Ari Smárason
Big Band Eyþórs
Borgir
Hafaldan
HVFFI
Impazzive
Lucasjoshua
Splitting Tongues
Undur
Þögn
29. MARS
BrekiBach
Fjöður
Geðbrigði
Gravity is optional
Guðbrandur Örn
Nuclear Nathan
Rown
Scatterbrayn
Sót
Spældu Egginn
30. MARS
Asbezt
Elín Óseyri
Flórurnar
Gréta Ólafs
King Standard
Kyrsa
Richter
SLYSH
Spacement
Úti í Hött
Úrslitakvöldið er haldið 6.apríl kl.17:00 og er miðaverð 2.700 kr.
Nánari upplýsingar er að finna á:
www.facebook.com/musiktilraunir
Icelandair er aðalbakhjarl Músíktilrauna.
Músíktilraunir eru styrktar af ÝLI tónlistarsjóði fyrir ungt fólk www.ylir.is.