© 2024 Tix Miðasala
Hannesarholt
•
7. desember
Miðaverð frá
14.900 kr.
Meistarakokkarnir Sindri og Sigurjón í Flóru veisluþjónustu töfra fram dýrindis jólakvöldverð í Hannesarholti 7. desember. Húsið opnar kl. 18:00 og matur er borinn fram kl. 19:00. Veislan verður á fyrstu hæð í Hannesarholti. Hægt er að velja um kjötveislu og veganveislu. Einnig er hægt að panta vínpörun með matnum eða áfengislausa drykkjarpörun.
Ath. ef það eru einhver ofnæmi vinsamlegast tilkynnið þau tímalega í tölvupósti hannesarholt@hannesarholt.is
Jólaveisla Flóru
Réttir til að deila
Sveppa og rjúpuvillibráðarsúpa með lakkrísfroðu
Íslensk gæsalifrarmús með kirsuberjageli og villisveppasósu
Reyktur Lax, pönnukaka, wasabi-rjómi og granatepli
Eggjabrauð með feyki ostakremi, Parmaskinka og truffluhunang
Forréttur
Hægelduð bleikja með sellerírótarremúlaði, kryddjurtakremi, perlulauk og piparrót
Aðalréttur
Nautalund með kartöfluköku ásamt sveppaduxell, gulrótum, pickluðum lauk, róstuðum möndlum og kryddgljáa
Eftirréttur
Risa a la mande með kirsuberjasósu, kirsuberjasorbet og möndlupralín
Jólaveisla Flóru Vegan
Réttir til að deila
Heitar aspastartalettur
Sellerírótarmús með kirsuberjageli og villisveppasósu
Reyktar gulrætur, pönnukaka, wasabi-rjómi og granatepli
Stökkt brauð með kryddjurtakremi, rauðbeðum og truffluhunangi
Forréttur
Grasker með sellerírótarremúlaði, kryddjurtakremi, perlulauk og piparrót
Aðalréttur
Vegan Wellington með kartöfluköku með sveppaduxell, gulrótum, pickluðum lauk, róstuðum möndlum og sveppasósu
Eftirréttur
Risa a la mande með krisuberjasósu, kirsuberjasorbet og möndlupralín