© 2024 Tix Miðasala
Digraneskirkja
•
8. desember
Karlakór Kópavogs heldur sína árlegu jólatónleika dagana 7. og 8.desember.
Kórinn fær góða gesti. Eins og undanfarin ár mun Skólakór Kársnesskóla syngja bæði einn
og með karlakórnum en sú blanda gefur einstaklega hátíðlegan blæ.
Sérstakur gestur kórsins í ár er Kristján Jóhannsson óperusöngvari.
Stjórnandi karlakórsins er Sigurður Helgi.
Stjórnandi skólakórsins er Álfheiður Björgvinsdóttir.
Píanóleikari er Hrönn Þráinsdóttir.
Í lok tónleikanna verður boðið uppá kakó og piparkökur svona til að setja punktinn yfir iið.